Börn bíða allt að ári eftir talmeinafræðingi
Mikill skortur er á talmeinafræðingum á landsvísu. Eyrún Svava Ingvadóttir og Sonja Magnúsdóttir, talmeinafræðingar á Akureyri, segja óvissuna sem felist í sjálfstæðum rekstri fæla nýútskrifaða frá og kalla eftir nýjum samningi við Sjúkratryggingar.
Sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar hafa verið án samnings við Sjúkratryggingar síðan 2017. Eyrún og Sonja, sem báðar eru sjálfstætt starfandi undir regnhlíf EKS talþjálfunar á Akureyri, telja þetta mjög bagalegt enda hafi ástandið bein áhrif á nýliðun í faginu. „Það þarf að fá samning sem gerir þetta starf eftirsóknarvert fyrir talmeinafræðinga. Án samnings við Sjúkratryggingar Íslands höfum við dregist aftur úr öðrum sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttum sem hafa náð samningum, s.s. sjúkraþjálfurum og sérgreinalæknum,“ segja þær.
Þá nefna þær að hugsanlega mætti fjölga nemendum í faginu með því að bjóða hluta námsins í fjarnámi. Námið er í dag kennt á meistarastigi við Háskóla Íslands en aukið fjarnám gæti opnað dyr fyrir fólk á landsbyggðinni, enda margir sem ekki treysta sér til að flytja suður vegna námsins.
- Þetta er seinni hluti viðtals við þær Eyrúnu og Sonju.
Í GÆR – VILTU AÐ BARNIÐ SEGI GULUR Á UNDAN YELLOW

Eyrún Svava hefur starfað sem talmeinafræðingur í þrjá áratugi. Starfið er krefjandi en jafnframt gefandi að hennar sögn. Mynd: SNÆ
Fimm talmeinafræðingar á Akureyri
Félagsmenn í fagfélagi talmeinafræðinga eru vel á annað hundrað á Íslandi og starfa þeir víða í kerfinu. Nýútskrifaðir nemendur hafa meðal annars ráðið sig til þjónustumiðstöðva sveitarfélaga þar sem þeir sinna greiningum og ráðgjöf fyrir skóla og leikskóla. En eftir greiningu þurfa skjólstæðingar í mörgum tilfellum á þjálfun að halda og þá þarf að senda þá til sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga. Og þar segja Eyrún og Sonja flöskuhálsinn vera. Þær áætla að aðeins rúmlega 20 talmeinafræðingar starfi í fullu starfi fyrir Sjúkratryggingar á landinu öllu, þótt fleiri sinni sjálfstæðri starfsemi í hlutastarfi.
Á Akureyri starfa nú fimm talmeinafræðingar, þar af eru fjórir hjá EKS talþjálfun og einn starfandi á sjúkrahúsinu. Þrír aðrir talmeinafræðingar eru á Norðurlandi eystra; tveir á Sauðárkróki og einn á Húsavík. Þar sem stéttin er fámenn er nóg að gera og Eyrún og Sonja segjast báðar fara reglulega í ferðir frá Akureyri til þess að sinna nágrannasveitarfélögunum, Dalvík og Fjallabyggð. Að þeirra sögn er biðtíminn eftir þjónustu talmeinafræðings á Akureyri oft um níu til tólf mánuðir.
Ég fór stundum út í búð og sá einhvern sem ég vissi að væri að bíða eftir að komast að hjá mér. Mér fannst þessi tilfinning óþægileg, að vita að einhver biði eftir þjónustu minni og geta ekkert gert til þess að flýta fyrir.
Forgangsraðað á biðlistann
Biðlistinn er hins vegar ekki einföld röð þar sem næsta nafn er tekið í hvert sinn sem tími losnar. Það þarf að forgangsraða á listann eftir því hver vandinn er og það getur verið erfitt. „Ef við erum að sjá barn í fyrsta skipti 15 ára, þá getum við greint vandann og það er vissulega kannski málþroskaröskun til staðar. En auðvitað veltir maður fyrir sér hversu mikla aðstoð við getum veitt þessu barni? Eigum við að velja 15 ára barnið fram yfir þriggja ára barn sem er lítið sem ekkert farið að tjá sig? Þetta er veruleikinn þegar eftirspurnin er meiri en hægt er að anna,“ segir Eyrún sem man vel eftir því þegar talmeinafræðingar voru enn færri á Akureyri en þeir eru í dag. „Ég fór stundum út í búð og sá einhvern sem ég vissi að væri að bíða eftir að komast að hjá mér. Mér fannst þessi tilfinning óþægileg, að vita að einhver biði eftir þjónustu minni og geta ekkert gert til þess að flýta fyrir,“ segir Eyrún og bætir við að þessi tilfinning sé enn hluti af starfsumhverfinu.
Þrátt fyrir mannekluna telja þær fyrirkomulag talþjálfunar barna á Akureyri vera að mörgu leyti gott, en samstarfssamningur hefur verið í gangi á milli Akureyrarbæjar og talmeinafræðinga síðan 1998. Þetta þýðir að ef niðurstöður úr prófum falla undir viðmið Sjúkratrygginga er þjónustan greidd samkvæmt því kerfi, en í vægari tilfellum greiðir sveitarfélagið ákveðinn fjölda tíma fyrir þjálfun. „Foreldrar þurfa í engu að borga fyrir talþjálfun,“ segja þær.

Sonja er ein af fjórum talmeinafræðingum sem starfa undir hatti EKS talþjálfunar á Akureyri. Pláss er fyrir fimmta talmeinafræðinginn hjá þeim en mannekla er í faginu. Mynd: SNÆ
Foreldrar greiða ekki fyrir talþjálfun barna
Gjaldfrjáls þjónusta leysir hins vegar ekki þann vanda að of fáir talmeinafræðingar eru starfandi í faginu. Vegna biðlistanna er þjónustan í auknum mæli hugsuð í lotum. Barn fær ákveðinn fjölda tíma, síðan er gert hlé og annað barn tekið inn á meðan. Það getur reynst erfitt, sérstaklega ef ljóst er að barnið þarf enn á þjónustunni að halda. Sonja og Eyrún segja að foreldrar séu ekki alltaf sáttir við að gera þurfi hlé, en biðlistinn er til að dreifa tímunum og geta þannig hjálpað fleirum.
Biðlistatölur segja þó ekki alla söguna. Eitt þeirra mála sem stéttin þarf nú að takast á við er þjónusta við fjöltyngd börn. Barn sem er nýkomið til Íslands og stendur illa að vígi í íslensku er ekki sjálfkrafa með málþroskaröskun. Til að geta metið það þarf að vita hvernig málþroski barnsins er á móðurmáli þess.
„Þó að það sé slakt í íslensku þá er ekki víst að málþroskinn sé slæmur á móðurmálinu,“ segir Eyrún og Sonja tekur undir og bætir við að það væri ósanngjarnt að leggja íslenskt málþroskapróf fyrir barn með annað móðurmál og greina röskun eingöngu út frá slakri niðurstöðu þess. Þær sjá því tækifæri í auknu samstarfi talmeinafræðinga og ÍSAT-kennara í skólunum.
Samhliða þessu velta þær upp hversu nákvæmar heildartölur um biðlista séu. Foreldrar á höfuðborgarsvæðinu geti til dæmis skráð sama barn á biðlista hjá fleiri en einni stofu. Þær nefna því hugmyndir um miðlægan biðlista sem gæti gefið skýrari mynd af raunverulegri þörf. Þetta verkefni er í undirbúningi hjá Sjúkratryggingum.

Mannekla í faginu
Ein möguleg lausn sem oft kemur upp í umræðunni um talmeinafræðinga er að þeir starfi einfaldlega inni í leik- og grunnskólum. Eyrún hefur reynslu af slíku fyrirkomulagi og segir það hafa bæði kosti og galla. Einn af kostunum er sá að barnið þarf þá ekki að fara úr skólanum í talþjálfun. Á móti kemur að samskipti talmeinafræðingsins við foreldrana verða minni en foreldrasamstarf skiptir mjög miklu máli í talþjálfun. Þegar Eyrún starfaði í skólunum þurfti hún stundum að verja aukatíma í að senda heim upplýsingar um hvað hefði verið gert og hvernig ætti að æfa heima. Best væri auðvitað að hafa talmeinafræðinga bæði í skólum og á stofum. „Jú, það væri hægt ef við værum 500,“ segir Sonja og bendir á að það vanti fólk í fagið.
Manneklan í faginu birtist ekki aðeins á biðlistunum heldur getur hún líka tekið sinn toll af þeim sem fyrir eru. „Starfið er krefjandi og maður getur komið uppgefinn heim eftir langan dag,“ segja þær báðar. Foreldrar hafa stundum miklar væntingar um hvað talmeinafræðingurinn geti gert fyrir barn þeirra með vikulegum tímum. Það er ekki nóg að koma bara í tíma og halda að það leysi allt. Allir þurfa að vinna saman, foreldrar, skólar/leikskólar og talmeinafræðingur. Þetta er ekki öðruvísi en tónlistarnám að þeirra sögn. Það þarf að æfa sig heima til að ná árangri en ekki bara mæta í tímann.

Eyrún og Sonja hafa áhyggjur af auknum skjátíma ungra barna sem komið hefur í staðinn fyrir bein samskipti við foreldra. Þetta hefur bitnað á málþroska margra barna.
Nýr samingur við Sjúkratryggingar forgangsatriði
Þrátt fyrir umræðu um manneklu, lausa samninga og biðlista vilja Eyrún og Sonja ekki að það sé eina sagan sem sögð sé af þeirra fagi. Þær vilja gjarnan fá fleiri talmeinafræðinga til starfa og þá ekki síst fleiri í sjálfstæðan rekstur. Eins myndu þær gjarnan vilja sjá sveigjanlegra nám og nýr samningur við Sjúkratryggingar er auðvitað algjört forgangsatriði.
„Ég myndi vilja sjá jákvæðari umfjöllun um starf okkar og að það fyrsta sem fólki detti í hug þegar það heyrir orðið talmeinafræði eða talmeinafræðingur sé ekki biðlisti eða vandamál,“ segir Eyrún og bendir á að hinum megin við biðlistann séu sögur af börnum sem enginn skildi en lærðu að gera sig skiljanleg. Eyrún hefur verið nógu lengi í faginu til að rekast reglulega á fyrrverandi skjólstæðinga sína fullorðna úti í samfélaginu, einstaklinga sem áður sátu hjá henni og voru í vandræðum með að mynda orð og setningar. „Maður sér þessi börn orðin fullorðin einhvers staðar að vinna og hugsar bara: „Vá, hvað þessi einstaklingur er að plumma sig vel í dag,“ segir hún og bætir við að það sé þess vegna sem tilhugsunin um að þjónusta talmeinafræðinga dragist saman sé þeim þungbær. Áframhaldandi fækkun sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar, sem sinna allri talmeinaþjálfun fyrir Sjúkratryggingar Íslands, mun lengja biðlista óháð því hvort biðlisti er miðlægur eða ekki. Að hennar sögn verða aðgerðir stjórnvalda að beinast að rótum vandans ekki einstökum einkennum.