Fara í efni
Fréttir

Blindhríð spáð á morgun og fram á sunnudag

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Um helgina er spáð norðanátt á landinu með hríðarveðri á fjallvegum og krapa í byggð. „Sleppur í dag, en síðan snjóar og skefur á Vestfjörðum, Norðurlandi og á Austurlandi,“ segir í skeyti frá Veðurstofu Íslands. „Sérstaklega verður blint seint á morgun og fram á sunnudagsmorgun.“