Fara í efni
Fréttir

Blak: Sigur og tap hjá KA gegn Þrótti

Myndir: Facebook-síða KA.

Blaklið KA í karla- og kvennaflokki komu heim frá Reykjavík með einn sigur og eitt tap gegn Þrótti í farteskinu í gærkvöld þegar fyrstu leikir Unbroken-deildanna í blaki fóru fram. KA-konur unnu sinn leik 3:0 en karlaliðið tapaði 3:1 eftir spennandi viðureign.

Fyrsta hrinan hjá körlunum var jöfn og spennandi en Þróttarar höfði sigur að lokum, 25:22. KA-menn svöruðu hins vegar strax í næstu hrinu með 25:18 sigri, þar sem þeir tryggðu sér sigurinn með því að skora fimm síðustu stigin í hrinunni. Heimamenn voru hins vegar sterkari í þriðju hrinu og unnu hana 25:21 eftir að hafa leitt allan tímann. Fjórða hrina var jöfn og spennandi alveg þangað til staðan var 16:16 en þá skoruðu Þróttarar fimm stig í röð og hleyptu KA ekki aftur inn í leikinn. Lokatölur í hrinunni urðu 25:18 og 3:1 sigur Þróttar í höfn.

Kvennaliði KA gekk hins vegar öllu betur í sinni viðureign síðar um kvöldið. KA hafði yfirburði í öllum þremur hrinunum gegn sameiginlegu liði Þróttar og Blakfélags Hafnarfjarðar og vann 25:20, 25:23 og 25:18. Leikurinn endaði því 3:0 fyrir KA, sem fylgdi þar með eftir góðum sigri gegn HK í viðureigninni um titilinn Meistarar meistaranna fyrir skömmu.