Blak: Sigur og tap hjá KA gegn HK
Blaklið HK í karla- og kvennaflokki komu norður um helgina og mættu KA í efstu deild í blaki, Unbroken-deildunum. KA vann öruggan 3:0 sigur í viðureign liðanna í karlaflokki en kvennaliðið tapaði 3:2 í hörkuspennandi viðureign.
Bæði KA og HK hafa farið rólega af stað í karlaflokki; KA var með einn sigur í fyrstu fimm umferðunum en HK hafði tapað öllum sínum leikjum. KA leiddi alla fyrstu hrinuna og þótt HK hefði náð að minnka muninn í lokin var 25:22 sigurinn öruggari en tölurnar gefa til kynna. KA vann síðan næstu tvær hrinur örugglega, 25:16 og 25:20 og leikinn þar með 3:0.
Kvennaliðið tapaði naumlega í háspennuleik
Kvennalið KA var hins vegar búið að vinna fjóra fyrstu leiki sína í deildinni og það án þess að tapa hrinu. HK var sömuleiðis búið að vinna alla sína leiki og viðureign liðanna var æsispennandi. KA náði forystunni með 25:21 sigri í fyrstu hrinu en HK jafnaði með því að vinna aðra hrinuna 25:17 og náði síðan forystunni með 25:20 sigri í þriðju hrinu. KA jafnaði leikinn eftir mikla baráttu í 4. hrinu með því að vinna eftir upphækkun, 27:25. Úrslitin réðust því í oddahrinu þar sem KA byrjaði betur og komst m.a. 8:4 yfir. En gestirnir náðu að vinna upp það forskot og unnu síðan hrinuna 15:13, með því að skora tvö síðustu stigin. Svekkjandi úrslit fyrir KA-stelpur, sem þar með töpuðu sínum fyrsta leik í vetur.