Bílum hleypt yfir brúna nokkrum sinnum á dag
Í þrjár vikur á tímabilinu 26. maí til 16. júní verður viðhaldsvinna í gangi á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði. Vegna þessa þarf að loka fyrir umferð yfir brúna. Aðeins er hægt að keyra yfir brúna á ákveðnum tímum fjórum sinnum á dag, sem og utan vinnutíma.
Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Vegagerðarinnar verður unnið að viðhaldi á brúnni alla virka daga frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 19 á kvöldin. Utan þess tíma verður brúin opin fyrir umferð en ætli fólk sér yfir að degi til þarf það að nýta sér opnunartímana sem eru þrisvar sinnum í hálftíma í senn og einu sinni í klukkutíma.
Opnunartímarnir eru þessir:
- 09:45 – 10:15
- 12:00 – 13:00
- 14:45 – 15:15
- 16:45 – 17:15
Til stendur að mála brúna á þessu tímabili, það er að segja ef veður leyfir. Sá fyrirvari er gerður að ef ekki viðrar til málningarvinnu mun verkefnið frestast lengra inn í sumarið. Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmum fyrirvara ef aðstæður krefjast.