Fara í efni
Fréttir

Bíll valt út af – einn alvarlega slasaður

Gífurleg umferð er á milli Dalvíkur og Akureyrar eftir Fiskidagstónleika í kvöld. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Einn er talinn alvarlega slasaður að sögn lögreglu eftir að bíll valt út af veginum við Kambhól á Ólafsfjarðarvegi, skammt frá Fagraskógi, eftir miðnætti í nótt. Tilkynnt var um slysið klukkan hálf eitt. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hinn slasaða og flutti á Sjúkrahúsið á Akureyri.
 
Greint var frá slysinu fyrir klukkustund á Akureyri.net en þá gat lögreglan ekki gefið neinar frekar upplýsingar.
 
Lögreglan rannsakar málið og er enn að störfum á vettvangi. Mikil umferð er um Ólafsfjarðarveg frá Dalvík vegna Fiskidagsins mikla og tafir hafa orðið á umferð. Skv. upplýsingum frá lögrelgunni var fljótlega hægt að hleypa umferð á til suðurs en enn er lokað til norðurs.