Bílastæðalausn án vangreiðslugjalda
Hugbúnaðarfyrirtækið Stefna á Akureyri og Raförninn hafa í sameiningu þróað sjálfvirka tæknilausn til að halda utan um umferð og aðgangsstýringu á bílastæðum. Bílastæðagjöldin eru innheimt eftir tímagjaldi í samráði við rekstraraðila hvers bílastæðis en aldrei eru lagðar á sektir eða vangreiðslugjöld af neinu tagi.
„Gjaldskylda“ er víða!
Undanfarin misseri hefur færst mjög í vöxt að innheimt sé gjald fyrir bílastæði hér og þar um landið, gjarnan á vinsælum ferðamannastöðum, og hefur þeim fyrirtækjum fjölgað sem sjá um að rukka. Enda er orðið Gjaldskylda að verða þekktasta „örnefni“ landsins, eins og frægt er og meðal annars var það valið orð ársins 2025 á RUV. Gjaldskrárnar eru álíka fjölbreyttar og staðirnir eru margir og neytendur eiga stundum erfitt með að fóta sig í þeim frumskógi. Að auki eru í mörgum tilfellum lögð á ýmiss konar viðbótar- og vangreiðslugjöld og meðal annars hafa Neytendasamtökin gagnrýnt harkalega viðskiptahætti sumra þeirra sem innheimta gjöld fyrir bílastæði.
Stefna og Raförninn settu á laggirnar fyrirtækið Kvasir lausnir ehf. sem þróaði bílastæðakerfi sem sameinar aðgangsstýringu, eftirlit og gjaldtöku. Þetta er sjálfvirk lausn til að halda utan um umferð á bílastæðum, hvort sem það eru ferðamannastaðir, bílastæði fyrirtækja og íbúa eða bílakjallarar.
Raförninn sér um það sem snýr að kerfishönnun, búnaði, uppsetningu og viðhaldi. Stefna sér um hugbúnaðarþróun þar sem þjónustukerfið Checkit spilar lykilhlutverk. Starfsmenn Kvasir lausna hafa komið að uppsetningu fjölmargra bílastæðalausna um allt land, til dæmis á Þingvöllum, við Seljalandsfoss og Hengifoss og bílastæðahúsum á borð við Höfðatorg og Kirkjusand.
Krafa í heimabanka hækkar ekki gjaldið
Róbert Freyr Jónsson, sölustjóri Stefnu, segir að sérstaða þjónustukerfisins Checkit felist í því að viðskiptavinir fái aldrei sendar neinar sektir eða vangreiðslugjöld. „Hluti af sjálfvirku kerfi Checkit er að nýta sér tengingar við gagnagrunna og bókhaldskerfi sem skilar sér í því að ef ekki er greitt á staðnum þá flettir kerfið upp eiganda bíls og sendir honum bílastæðagjaldið beint í heimabankann. Þannig er sú leið ekki eitthvað sem þarf að refsa fyrir heldur er það bara ein af greiðsluleiðunum,“ útskýrir Róbert. Hann segir að til að byrja með hafi fólki ekki staðið alveg á sama að fá senda kröfu í heimabankann og talið að um væri að ræða sekt fyrir að greiða ekki á staðnum. „En það eina sem leggst ofan á er hóflegt seðilgjald sem er í kringum 100-130 krónur, eftir því hvaða stað um ræðir. Það er virkilega gaman að geta glatt fólk með því að útskýra þessa nálgun,“ segir Róbert.
Róbert segir að þessi stefna hafi skilað sér í ánægðum notendum og jákvæðri umfjöllun í fjölmiðlum. Talsmenn bæði Neytendasamtakanna og Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hafi lýst því yfir að þeir séu sáttir við Checkit-útfærsluna.
Hægt er að greiða fyrir bílastæði á vefsíðu Checkit eða í sérsmíðuðum greiðsluvélum á viðkomandi stað. Checkit rekur þjónustuver sem sinnir notendum og viðskiptavinum, hvort sem það eru íbúar í bílakjallara, starfsmenn fyrirtækja á aðgangsstýrðu svæði eða ferðamenn sem þurfa aðstoð.