Bílastæðahús, hvar og hvernig? Nokkrar hugmyndir að bílastæðahúsi á Akureyri
Miðbær og bíll. Miðborg og bíll. Það hefur valdið miklum heilabrotum hvernig þetta getur farið saman. Í skemmtilegum miðbæ eru falleg hús og græn svæði, veitingahús, kaffihús og umhverfi og andi sem fær mann til að vilja staldra við, setjast niður og njóta augnabliksins. Kannski fá sér einn kaldan (norðlenskan auðvitað!). Bílastæðaflákar búa ekki til þannig aðstæður. En það minnkar líka lífið í miðbænum ef þangað er ekki hægt að komast á bíl. Bíllinn er okkar aðal samgöngutæki, það er erfitt að skauta fram hjá því.
En er vandamálið ekki auðleyst? Miðbærinn er byggður með fallegum húsum og einhver þeirra eru einfaldlega fyrir bíla, bílastæðahús, þótt það sjáist ekki endilega utan á þeim. Þannig er hægt að halda þéttleikanum og miðbæjarandanum. Jú, þetta er lausnin en bílastæðahús eru dýr og rampar á milli hæða taka vænan skerf af húsrýminu. Hver á að borga fyrir þessi hús? Bíleigendur eða samfélagið? Líklega sambland af þessu.
Það er jafnframt augljóst að heppilegra er að í húsi í miðbæ sé iðandi miðbæjarstarfsemi frekar en geymsla fyrir bíla. Þess vegna er best ef hægt er að staðsetja bílastæðahús þar sem þau taka ekki pláss frá mögulegum öðrum byggingum. T.d. neðanjarðar. Ef í miðbænum - eða við hlið hans - er hallandi landslag aukast verulega möguleikarnir á bílastæðahúsi neðanjarðar.
Í miðbæ Akureyrar eru ýmsir möguleikar á bílastæðahúsum. Nokkrir þeirra eru neðanjarðar þar sem ekki er tekið pláss frá hugsanlegri byggingu. Hér í framhaldinu eru nefndir nokkrir kostir.
Milli Brekkuskóla og Rósenborgar undir skólalóðinni
Hægt væri að gera bílastæðahús undir leikskólalóðinni við Brekkuskóla. Það gæti væntanlega verið tvær hæðir. Útkeyrslan væri á tveimur stöðum í Gilinu. Sú efri alveg uppvið kartöflugeymsluna. Með þessu væri ekki tekið pláss frá öðrum byggingum, fyrir ofan bílastæðahúsið væri skólalóðin eins og nú. Hér þarf engan ramp, hallinn í Gilinu gerir það að verkum að auðvelt er að hafa innaksturinn inn á neðri hæðina einfaldlega aðeins neðar í brekkunni, sjá mynd. Hægt er að auka rýmið þarna með því að skera aðeins af brekkunni.
Þetta er mikið svæði sem þarna væri hægt að nýta, sjá mynd. Teiknaða svæðið á myndinni er um 5.500 m2 Á tveimur hæðum væri hægt að gera þarna mjög stórt bílastæðahús. Smá spölur er niður í bæ og líklegt að kirkjutröppurnar verði helsta leiðin sem er skemmtilegt og eykur gildi þeirra. Stuttur göngutúr sem gefur glæsileg aðkomu að miðbænum.


Við hliðina á Akureyrarkirkju
Hægt væri að gera bílastæðahús undir planinu sem er norð-vestan við Akureyrarkirkju. Sjá mynd. Teiknaða svæðið á myndinni er um 2.600 m2
Þarna eru ýmsir möguleikar. Jafnvel væri hægt að fara aðeins undir Eyrarlandsveginn ef þurfa þykir. Þetta bílastæðahús væri meira og minna ósýnilegt en innkeyrslan væri á sama stað og nú inn á núverandi bílastæði í Gilinu neðan við planið við kirkjuna, sjá mynd. Það bílastæði yrði líklega á einhvern hátt hluti af bílastæðahúsinu. Líklega gæti þetta bílastæðahús verið tvær hæðir en nokkuð vandsamt er að útfæra það.
Eðlilegasta leiðin fyrir gangandi úr þessu bílastæðahúsi niður í bæ væru kirkjutröppurnar. Þetta neðanjarðar rými fyrir bíla myndi því auka gangandi umferð um tröppurnar og gefa þeim aukalegan tilgang. Og þegar komið væri út blasti við skemmtileg sjón, glæsilegt útsýni yfir bæinn. Sjá mynd. Neðan við kirkjutröppurnar er hjarta bæjarins.


Útsýnið þegar komið er út úr bílastæðahúsinu við hliðina á kirkjunni.
Neðan Brekkugötu við íþróttavöllinn
Oft hefur verið nefnt að byggja bílastæðahús inn í brekkuna fyrir neðan Brekkugötu sunnan við íþróttavöllinn. Þarna er nokkuð gott rými og nálægt miðbænum. Væntanlega væri hægt að nota Brekkugötuna til að aka inn á efri hæð eða efri hæðir en innkeyrsla væri fá Hólabraut á neðstu hæð eða hæðir. Það er hins vegar galli að þarna er verið að nýta pláss sem í sjálfu sér væri hægt að nýta fyrir glæsilegri bygginar. Þetta er einnig uppvið Íþróttavöllinn sem senn mun fá nýtt hlutverk og því spurning hvernig bílastæðahús þarna rímaði við framtíðarsýnina á þessu svæði. Teiknaða svæðið á myndinni er um 3.300 m2


Neðan og norðan við Samkomuhúsið
Neðan og norðan við samkomuhúsið er nú nokkuð stórt bílastæði. Þetta bílastæði væri líklega hægt að grafa aðeins neðar þótt ekki sé langt niður í sjávarmál á þessum stað. Síðan væri hægt að tvöfalda þetta stæði með því að byggja plötu yfir og hafa bílastæði þannig á tveimur hæðum. Hugsanlega væri betra að fara með allt heila klabbið örlítið vestar, inn í brekkuna.
Engan ramp þarf upp á efri hæðina því hann er þegar til, Hafnarstrætið sem fer í aflíðandi brekku upp að Samkomuhúsinu. Eins og staðan er í dag dettur engum í hug að byggja á þessum stað og er þessi bílastæðaútfærsla því ekki að koma í veg fyrir uppbyggingu húsnæðis. Næstu kynslóðir gætu þó haft aðra skoðun sérstaklega á þeim hluta sem ekki skyggir á Samkomuhúsið. En þá yrði platan einfaldlega rifin. Bílastæði á tveimur hæðum á þessum stað er ekki beint bæjarprýði. Það hefur áhrif á ásjónu bæjarins en líklega ekki úr hófi. Fer nokkuð eftir því hve neðarlega má fara með neðri hæðina. Teiknaða svæðið á myndinni er um 1.900 m2


Undir Eiðsvelli
Líklega er hægt að hafa bílastæði undir Eiðsvelli. Þetta er stórt svæði. Teiknaða svæðið á myndinni er um 5.600 m2. Margir staðir koma til greina sem innkeyrsla þar sem rampur væri niður á gólfflötinn. Hér skiptir mestu hversu djúpt má hafa gólfplötuna en sjávarmál er takmarkandi þáttur. Líklega þyrfti þó að lyfta vellinum eitthvað upp og hafa hann hærri en nú. Það gæti þýtt handrið umhverfis hann en það þarf ekki að minnka gildi hans. Eiðsvöllur er sorglega lítið notaður af bæjarbúum. Gallinn við Eiðsvöll fyrir neðanjarðar bílastæðahús er hins vegar að hann er lengra frá miðju bæjarins en hinir staðirnir og það þyrfti að fara yfir Glerárgötu.

Jón Þorvaldur Heiðarsson skipar níunda sæti L-listans til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri í maí.