Fara í efni
Fréttir

Bikar á loft í Innbænum – spenna í blakinu

Dagurinn í dag er dagur lokaleikja, ef svo má segja. Blaklið KA ljúka bæði leik í deildarkeppninni og kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí spilar lokaleik sinn í Toppdeildinni í dag. SA-konur hafa fyrir nokkuð löngu tryggt sér deildarmeistaratitilinn, en bikarinn bíður og fer væntanlega á loft í leikslok í kvöld.

Endanleg röð þegar ráðin hjá körlunum

KA mætir HK öðru sinni í Unbroken-deild karla í blaki, en leikurinn er jafnframt lokaleikur deildarinnar. Leikurinn skiptir í raun engu máli upp á röð liðanna því Hamar tryggði sér deildarmeistaratitilinn á föstudag og úrslit leikja í gær þýða að KA er öruggt í 2. sætinu, Afturelding í 3. sæti og Þróttur R. í 4. sætinu, sama hvernig fer í dag. 

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 15
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Það er því ljóst að KA mætir Aftureldingu í undanúrslitum Íslandsmótsins, en hin viðureignin er á milli Hamars og Þróttar R.

HK eða KA deildarmeistarar kvenna?

Seinni leikur kvennaliðs KA í blaki gegn HK, í spennandi toppbaráttu deildarinnar, fer fram í dag og þá ræðst hvort liðið verður deildarmeistari og fær oddaleiksrétt í úrslitum. Eftir jafnan og spennandi leik í gær þar sem KA komst í 2-1 en HK jafnaði og vann í oddalotu varð ljóst að leikurinn í dag ræður úrslitum. Ef KA hefði tapað 3-1 eða 3-0 í gær væri HK þegar búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn, en með því að leikurinn fór í oddalotu fékk KA eitt stig og HK tvö.

Staðan fyrir lokaleikinn er því þannig að HK er með 49 stig og KA 47. Það er því ljóst að það dugar KA ekki að vinna í oddalotu heldur verður liðið að vinna 3-0 eða 3-1 til að fara upp fyrir HK.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 18:15
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Bikar á loft í Skautahöllinni

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí hefur fyrir nokkru tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Toppdeildinni og oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu. Liðið á þó eftir einn leik í deildinni og tekur á móti SR í lokaleik sínum, væntanlega með bikarafhendingu í leikslok.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Skautahöllin á Akureyri kl. 18:45
    SA - SR
  • Útsending: Icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum.

SA og SR mætast síðan einnig í úrslitaeinvíginu sem hefst laugardaginn 21. mars í Skautahöllinni á Akureyri.