Bergið eflir þjónustu á Norðurlandi
Öll tíu sveitarfélögin á starfssvæði Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hafa samþykkt samstarfssamning við Bergið Headspace um aukna stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungmenni á svæðinu.
Samningurinn var undirritaður á Haustþingi SSNE á Dalvík í gær og gildir til 30. júní 2029. Markmiðið er að auðvelda ungu fólki aðgang að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðla að snemmtækri íhlutun.
Í fréttatilkynningu frá SSNE segir að Bergið veiti ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára einstaklingsmiðaða ráðgjöf án skilyrða og endurgjalds. Með nýja samningnum verður reglubundin starfsemi á Akureyri að jafnaði þrjá daga í viku. Þá verður mánaðarleg viðvera á Ólafsfirði, Húsavík og Grenivík og viðvera og fræðsla á Þórshöfn að minnsta kosti tvisvar á ári. Einnig verður boðið upp á fjarþjónustu eftir þörfum.
Með samstarfinu sameinast sveitarfélögin um að efla og þróa þjónustu við ungt fólk á Norðurlandi eystra og tryggja samfellu, gæði og gott aðgengi að þjónustunni til lengri tíma.
Ungmenni og aðstandendur þeirra geta óskað eftir þjónustu Bergsins í gegnum vef þess, símleiðis eða með tölvupósti.