Fara í efni
Fréttir

Belgískur framherji til liðs við Þór

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við belgískan framherja, Lore Devos, um að leika með kvennaliði félagsins næsta vetur. Liðið leikur þá á ný í efstu deild Íslandsmótsins, Subway-deildinni, eftir langa fjarveru.

Grein er frá þessu á heimasíðu Þórs í morgun.

Lore Devos 24 ára, 184 sentímetrar að hæð og gengur til liðs við Þór frá Castors Braine í Belgíu. Lore á einnig að baki fjögurra ára háskólakörfuboltaferil með Colorado State þar sem hún gerði 13 stig og tók sjö fráköst að meðaltali á síðasta tímabilinu sínu í Bandaríkjunum., að því er segir á Þórsvefnum.

„Eftir háskóla spilaði Lore með BCF Elfic Fribourg Basket í svissnesku deildinni þar sem hún skilaði tíu stigum og fimm fráköstum í leik og tók einnig þátt í Eurocup leikjum liðsins með átta stig og sex fráköst að meðaltali og vann hún bæði deildarmeistara- og bikarmeistaratitil í Sviss. Lore hélt þá aftur til heimalandslins og var með sjö stig og fjögur fráköst að meðaltali fyrir Castors Braine ásamt því að leika með liðinu í Eurocup,“ segir á heimasíðu Þórs.

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari kvennaliðs Þórs, kveðst ánægður með að fá Lore Devos til liðs við Þór. Hún kom til með að styrkja liðið á flestum vígstöðum. „Hún er hörkudugleg varnarlega og getur dekkað leikmenn af nánast öllum stærðum og gerðum. Sóknarlega er hún með risastórt vopnabúr og eru ákvörðunartaka og leikskilningur hennar framúrskarandi. Við erum mjög spennt að fá Lore og vonum að hún komi inn með mikinn kraft í þetta fyrsta tímabil stelpnanna í efstu deild,“ segir Daníel Andri.

Heimasíða Þórs