Fara í efni
Fréttir

Erfitt á Akranesi og Þór aftur í botnsætið

Aron Birkir Stefánsson var besti maður Þórs í kvöld. Hann varði nokkrum sinnum mjög vel úr opnum færum Skagamanna, hér frá Steinari Þorsteinssyni þegar um hálftími var liðinn. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Þór er kominn í botnsæti Bestu deildar karla í fótbolta á nýjan leik eftir ósigur gegn ÍA á Akranesi í kvöld, 2-0, í átjándu umferð deildarinnar.

Fallsætunum tveimur deilir Þór nú með KA, sem tapaði 1-0 fyrir FH á heimavelli í kvöld og Akureyrarliðin tvö sitja nú eftir í ellefta og tólfta sætinu með 15 stig hvort. ÍBV og FH eru í sætunum fyrir ofan með 17 stig en ÍBV náði í dýrmætt stig með því að jafna óvænt gegn toppliði Víkings í Fossvogi í kvöld, 2-2.

Staðan er því ekki vænleg en Þór tapaði reyndar í fyrsta skipti í fjórum leikjum eftir að hafa aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu þremur. En Þórsliðið heldur áfram að tapa dýrmætum stigum til liðanna sem það er í baráttu við í neðri hluta deildarinnar. Það hefði komið sér betur að hafa tekið tíu stig af þeim í stað þess að taka tíu stig af fjórum efstu liðunum! 

Víti! Gísli Laxdal skýtur að marki, boltinn fer í hönd Fannars Daða Malmquist Gíslasonar og vítaspyrna dæmd.

Aron forðaði stærra tapi

Þórsarar geta þakkað Aroni Birki Stefánssyni fyrirliða og markverði fyrir að hafa aðeins tapað 2-0 í kvöld því hann varði nokkrum sinnum mjög vel úr opnum færum Skagamanna sem voru alltaf líklegri til að bæta við mörkum en Þórsarar að koma sér inn í leikinn. Aron var besti maður liðsins í kvöld.

Sóknarmenn Þórs komust sjaldan áleiðis gegn sterkri og vel skipulagðri vörn Skagamanna en þar lá munurinn á liðunum fyrst og fremst. Þórsarar áttu á löngum köflum síst minna í leiknum úti á vellinum en þeir gulu og svörtu voru miklu beinskeyttari í sínum sóknarleik. Ekki bætti úr skák fyrir Þórsara að þeir skyldu missa Einar Frey Halldórsson, miðjumannnn bráðefnilega, af velli í byrjun síðari hálfleiks, vegna meiðsla sem hann varð fyrir undir lok þess fyrri.

Þarna munaði mjóu. Árni Marinó markvörður ÍA missti boltann eftir aukaspyrnu Einars Freys Halldórssonar, Yann Emmanuel Affi reyndi hvað hann gat að ná til boltans en Skagamenn bægðu hættunni frá á síðustu stundu. 

Ein breyting á liðinu

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs gerði eina breytingu á byrjunarliðinu frá sigurleiknum gegn Breiðabliki. Spænski framherjinn Victor Bertomeu kom inn í liðið á ný í stað hins kornunga Þorra Ingólfssonar sem var á varamannabekknum.

Hjá ÍA var reynsluboltinn Gísli Eyjólfsson í banni vegna rauðs spjalds og Steinar Þorsteinsson kom inn í byrjunarliðið í hans stað. Annars var ÍA með sama lið og gerði jafntefli, 2-2, við topplið Víkings í síðustu umferð.

Þórsarinn á bekk Skagamanna

Lárus Orri Sigurðsson þjálfar Skagamenn og þar eru heldur betur tengingar við Þór. Hann ólst upp á Akranesi frá sex til fimmtán ára aldurs þar sem Þórsarinn faðir hans Sigurður Lárusson lék þá með ÍA, en spilaði svo fimm fyrstu meistaraflokksárin með Þór, til að byrja með undir stjórn föður síns, og svo aftur í fimm ár eftir að hafa leikið sem atvinnumaður á Englandi í níu ár. Lárus Orri þjálfaði síðan Þór í samtals sjö ár en þetta vita svo sem allir Akureyringar sem komnir eru til vits og ára!

Skagamenn urðu fyrir áfalli strax á 3. mínútu þegar þeir misstu reynsluboltann og tónlistarmanninn Guðmund Þórarinsson meiddan af velli. Skagfirðingurinn Jón Gísli Eyland Gíslason kom í hans stað.

Birgir Ómar Hlynsson kom inn í vörnina á síðustu stundu en Ásbjörn Líndal Arnarsson var upphaflega á leikskýrslunni og meiddist í upphitun. Birgir fékk gula spjaldið strax á 6. mínútu, sem er ekkert sérstakt fyrir varnarmann.

Aron vel með á nótunum

Aron Birkir Stefánsson fyrirliði og markvörður Þórs þurfti að taka vel á því á 8. mínútu þegar hann varði aukaspyrnu Hauks Andra Haraldssonar vel í horn.

Einar Freyr Halldórsson skaut fyrstur Þórsara að marki á 11. mínútu átti fast skot frá vítateig en rétt framhjá Skagamarkinu.

Skagamenn vildu fá vítaspyrnu á 22. mínútu þegar tveir þeirra, Viktor Jónsson og Gísli Laxdal Unnarsson, féllu í návígi í vítateig Þórs en Gunnar Oddur Hafliðason dómari veifaði leikinn áfram, við takmarkaða hrifningu Lárusar Orra og hans manna.

ÍA fékk fyrsta sannkallaða dauðafærið á 26. mínútu þegar Viktor Jónsson fékk langa sendingu frá hægri kantinum og skallaði að marki, einn gegn Aron Birki, en nánast beint á hann og Aron varði örugglega.

Viktor kom ÍA yfir og Aron lokaði markinu

Skagamenn fengu síðan vítaspyrnu á 28. mínútu þegar Gísli Laxdal skaut í höndina á Fannari Daða. Viktor fór á vítapunktinn og skoraði af öryggi, 1-0.

Aron Birkir gerði vel á 33. mínútu þegar Steinar Þorsteinsson komst óvænt innfyrir vörn Þórs eftir lúmska aukaspyrnu. Aron kom vel á móti honum, lokaði markinu og bjargaði í horn.

Aron Birkir kom ennþá betur til bjargar fimm mínútum síðar þegar Markús Páll Ellertsson slapp inn fyrir miðja vörn Þórs og var einn gegn Aroni sem kom út á móti og varði glæsilega.

Einar Freyr Halldórsson meiddist á fingri og lá sárþjáður á vellinum undir lok fyrri hálfleiks en hélt áfram leik eftir að hugað var að honum. Einar varð svo að fara af velli á upphafsmínútum seinni hálfleiks. 

Handarmeiðsli hjá Einari

Þórsurum brá í brún mínútu síðar þegar Einar Freyr lá og meiddist á hönd, var greinilega sárþjáður, en sneri aftur inn á völlinn eftir aðhlynningu. Rétt á eftir fór fyrsta gula spjaldið á loft á Skagamenn þegar Jón Gísli braut hressilega á Fannari Daða. Eftir talsverða hörku á báða bóga í fyrri hálfleiknum má segja að Gunnar Oddur hafi farið sparlega með spjöldin.

Þórsarar sluppu síðan með skrekkinn þegar Steinar Þorsteinsson skaut í stöng Þórsmarksins af stuttu færi eftir hornspyrnu, með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Verðskulduð forysta ÍA í hálfleik, 1-0.

Einar þurfti að fara af velli

Skagamenn héldu áfram að ógna í byrjun síðari hálfleiks og Steinar Þorsteinsson skaut yfir mark Þórs úr dauðafæri eftir hornspyrnu á 49. mínútu. Í kjölfarið þurfti Einar Freyr að fara af velli hjá Þór vegna handarmeiðslanna og þar var skarð fyrir skildi á miðjunni.

Skagamenn komust í 2-0 á 55. mínútu. Gísli Laxdal átti hörkuskot sem Aron Birkir varði en Erik Sandberg fylgdi á eftir og skoraði af stuttu færi. Staða ÍA var orðin heldur betur vænleg.

Victor Bertomeu freistaði þess að skora með hjólhestaspyrnu á 61. mínútu. Ágæt tilraun Spánverjans en Árni Marinó í marki ÍA varði auðveldlega.

Sigurður Heiðar tók Victor og Fannar Daða af velli á 66. mínútu og setti Þorra Ingólfsson og Kristófer Kristjánsson inn á í staðinn.

Þetta breytti litlu, Skagamenn gáfu áfram lítil sem engin færi á sér. Ágúst Eðvald Hlynsson náði hörkuskoti af 20 metra færi að marki ÍA á 78. mínútu en beint á Árna Marinó í markinu. Í næstu sókn átti Markús Páll hættulegt skot að marki Þórs sem geigaði naumlega.

Boltinn lendir í þverslá Skagamarksins eftir skalla Kristófers Kristjánssonar nokkrum mín. fyrir leikslok. Árni Marinó varði skot hans nokkrum augnablikum áður en var ekki nálægt því að boltanum eftir skallann.

Kristófer fékk bestu færin í sömu sókninni

Sigurður Heiðar gerði aðra tvöfalda skiptingu á 82. mínútu og sendi Sigfús Fannar og Hermann Helga inn á fyrir Kevin Vázquez og Ágúst Eðvald Hlynsson.

Í kjölfarið kom góður kafli Þórsara. Kristófer Kristjánsson fékk besta færið fram að því á 86. mínútu þegar hann skaut af stuttu færi eftir mikla pressu en einhvern veginn náði Árni Marinó að komast fyrir skotið á marklínunni. Sóknin hélt áfram og þá skallaði Kristófer í þverslána.

En þetta var síðasta hálmstrá Þórs og Aron Birkir kom skömmu síðar í veg fyrir þriðja mark ÍA þegar hann varði vel frá Viktori úr snöggri sókn ÍA.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Kevin Vázquez (Hermann Helgi Rúnarsson 82.), Yann Emmanuel Affi, Birgir Ómar Hlynsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson – Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Einar Freyr Halldórsson (Vilhelm Ottó B. Ottósson 49.), Christian Jakobsen – Ágúst Eðvald Hlynsson (Sigfús Fannar Gunnarsson 82.), Victor Bertomeu (Þorri Ingólfsson 66.), Fannar Daði Malmquist Gíslason (Kristófer Kristjánsson 66.)


18 umferðir eru að baki og því fjórir leikir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.

Þórsarar hafa unnið fjóra leiki í sumar, gert þrjú jafntefli og tapað 11 leikjum. 

Í fyrstu umferð unnu þeir Val á útivelli, og hafa síðan unnið Fram, Víking og Breiðablik á heimavelli.

Jafnteflin eru þrjú, gegn FH úti, KR heima og KA úti og Þórsarar hafa tapað fyrir KR, Breiðabliki, Víkingi, Keflavík, Fram og ÍA á útivelli en KA, ÍA, Stjörnunni, ÍBV og Val heima.

Næsti leikur er á heimavelli gegn Keflvíkingum sem eru í sjötta sæti, en fjórir síðustu leikirnir fyrir skiptingu eru gegn liðum sem einnig eru í neðri hlutanum.

  • Laugardag 15. ágúst 17:00
    Þór - Keflavík
  • Sunnudag 23. ágúst 17:00
    Stjarnan - Þór
  • Sunnudag 30. ágúst 16:00
    ÍBV - Þór
  • Sunnudag 6. september 14:00
    Þór - FH