Fara í efni
Fréttir

Bekkur til minningar um Þorvald Þorsteinsson

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Minningarbekkur til heiðurs Þorvaldi Þorsteinssyni verður afhjúpaður á Hamarkotstúni á morgun – á afmælisdegi listamannsins. Hann fæddist á Akureyri 7. nóvember 1960 en lést á heimili sínu í Antwerpen í Belgíu 23. febrúar 2013.
 
Það eru skólasystkini Þorvaldar úr Menntaskólanum á Akureyri „sem hafa látið komið fyrir granítbekk á Hamarkotstúni til minningar um listamanninn og mannvininn Þorvald,“  eins og segir í tilkynningu. „Þar verður hægt að tylla sér niður í fögru umhverfi, skammt frá bernskuheimili hans við Hamarstíg, en um þessar slóðir gekk hann meðal annars á leið sinni til og frá skóla.“
 
Athöfnin hefst klukkan 14.00 á morgun, laugardag, og allir eru hjartanlega velkomnir.
 
Dagskrá verður sem hér segir:
 
  • Sindri Kristjánsson, bæjarfulltrúi flytur ávarp
  • Urður Bergsdóttir leikkona les úr Ósómaljóðum
  • Séra Svavar Alfreð Jónsson, flytur ávarp
  • Stefnir Ægir Stefánsson trúbador, flytur lagið Lengi má manninn reyna
  • Skólasystkini Þorvaldar, Hugrún Sigmundsdóttir og Reynir Viðarsson, afhjúpa bekkinn
 
„Þorvaldur Þorsteinsson var einstakur og fjölhæfur listamaður sem fór sínar eigin leiðir í sköpun sinni. Hann var myndlistarmaður, rithöfundur og leikskáld sem hafði einstakt lag á að flétta saman húmor, ímyndunarafli og djúpri mannlegri sýn,“ segir í tilkynningu skólakystkina Þorvaldar. „Í verkum hans gat hið hversdagslega orðið ævintýralegt og hið fáránlega öðlast óvænta merkingu.
Þorvaldur skilur eftir sig verk sem halda áfram að gleðja, vekja spurningar og fá okkur til að sjá heiminn örlítið öðrum augum.“