Fara í efni
Fréttir

Bærinn semur á ný við Skátafélagið Klakk

Bæjarráð Akureyrarbæjar og lýðheilsuráð bæjarins hafa samþykkt samning milli Akureyrarbæjar og Skátafélagsins Klakks um framlag Akureyrarbæjar til Klakks vegna þjónustu sem félagið leggur fram í bæjarfélaginu. Akureyrarbær leggur til 630 þúsund krónur árlega á samningstímanum, árin 2026-2028 í rekstur og starfsemi klakks, auk styrks í formi húsaleigu og félagsaðstöðu í Þórunnarstræti 99. Styrkur til félagsins í formi húsaleigu á árinu 2025 var rúmar 9,4 milljónir króna. 

Markmið Akureyrarbæjar, eftir því sem fram kemur í samningnum, er „að styðja við starf barna og ungmenna og gefa þeim kost á heilbrigðu og metnaðarfullu félags- og æskulýðsstarfi í anda skátahreyfingarinnar. Akureyrarbær leggur áherslu á að starfið standi til boða fjölbreytilegum hópi barna og ungmenna. Akureyrarbær er barnvænt sveitarfélag þar sem byggt er á fimm grunnþáttum; þekkingu á réttindum barna, því sem er barni fyrir bestu, jafnræði – að horft sé til réttinda allra barna, þátttöku barna og barnvænni nálgun.“

Á móti framlagi Akureyrarbæjar til Skátafélagsins Klakks „skal félagið bjóða upp á barna- og unglingastarf á Akureyri. Bjóða skal upp á faglegt starf með forvarnir og jafnrétti að leiðarljósi og sem taka mið af grunnþáttum barnvænna sveitarfélaga.“