Fréttir
Bæjarfulltrúar verða til viðtals á nýjan leik
31.08.2026 kl. 09:30
Viðtalstímar bæjarfulltrúa verða á Amtsbóksafninu, sá fyrsti 22. september næstkomandi.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa á Akureyri verða endurvaktir í næsta mánuði. Bæjarbúum stóðu slíkir fundir til boða fyrir nokkrum árum en þeir lögðust af. Málið er á dagskrá næsta fundar bæjarstjórnar, á morgun.
„Í málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar kemur fram það markmið að endurvekja viðtalstíma bæjarfulltrúa og efla samráð við íbúa og fyrirtæki,“ segir í dagskrá fundarins. Lagt er til að viðtalstímarnir verði haldnir fjórða þriðjudag hvers mánaðar frá kl. 16:00 til 17:30 og a.m.k tveir bæjarfulltrúar verði til viðtals hverju sinni, annar frá meirihluta og hinn frá minnihluta.
Lagt er til að fyrsti viðtalstíminn verði 22. september á Amtsbókasafninu á Akureyri.