Aukin krafa um búnað í lengstu hlaupaleiðum
Fjallahlaupið Súlur Vertical fer fram á Akureyri um helgina; krakkahlaupið í dag og fullorðnir spreyta sig á fjórum mismunandi vegalengdum á morgun. Samkvæmt sérsniðinni veðurspá sem skipuleggjendur hlaupsins fengu í gær frá veðurfræðingi, fyrir hlaupaleiðina á morgun, er gert ráð fyrir einhverri úrkomu, vindi og fremur lágu hitastigi. Upp til fjalla verður því að öllum líkindum blautt og mikil vindkæling.
Til að tryggja öryggi hlaupara hefur verið gerð krafa um aukinn skyldubúnað í lengstu vegalengdum, Gyðjunni og Tröllinu. Keppendum í þeim vegalengdum hefur verið sendur tölvupóstur með upplýsingum um skyldubúnað. Ekki er um að ræða aftakaveður og með réttum klæðnaði ætti að vera leikur einn fyrir hlaupara að takast á við íslenska sumarið, að sögn skipuleggjenda – og koma brosandi í mark!
Öryggi hlauparanna er ætíð í fyrirrúmi, að sögn Birkis Baldvinssonar, formanns Súlna Vertical, og því var gripið til þess ráðs að láta gera veðurspá fyrir hlaupaleiðina. Vel að verki staðið!

- Afhending keppnisgagna er hafin í Hofi og heldur áfram í dag á sama stað á milli kl. 14:00 og 19:00.
- Lengsta hlaupaleiðin, Gyðjan, er 100 km. Fyrstu hlauparar sem ætla þá vegalengd leggja af stað frá Goðafossi kl. 21 í kvöld og annar hópur klukkan 2 eftir miðnætti.
- Ræst er í aðrar veglengdir í Kjarnaskógi í fyrramálið, á mismunandi tímum.
- Hlauparar fara að tínast í mark í göngugötunni um hádegi á morgun, laugardag. Þar myndast gjarnan mjög skemmtileg stemning og ástæða til að hvetja fólk til að mæta á staðinn, og til að styðja við bakið á hlaupurunum annars staðar.
- Krakkahlaupið fer fram í Kjarnaskógi í dag, föstudag, kl. 16:00. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram heldur einfaldlega mæta á túnið fyrir ofan Kjarnakot og neðan við sólúrið. Þar verða númer afhent frá kl. 15:00.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu hlaupsins www.sulurvertical.is