Fara í efni
Fréttir

Átta ára fór holu í höggi og varð annar í 12 ára flokki

Axel James Wright, brosmildur eftir að hann fór holu í höggi, á Dalvík um síðustu helgi.

Axel James Wright frá Akureyri fór holu í höggi á Norðurlandsmótinu í golfi á Dalvík um síðustu helgi. Hann varð í 2. sæti í 12 ára flokki sem væri líklega ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Axel James er aðeins átta ára!

„Axel gæti verið yngsti kylfingurinn hér á landi að fara holu í höggi en kylfingur.is hefur ekki fengið það staðfest,“ skrifar Páll Ketilsson á þann góða vef á þriðjudaginn. Páll segir drenginn hafa vakið athygli fyrir hæfni sína og áhuga á golfíþróttinni.

„Axel James náði draumahögginu á 1. braut en í mótinu var ræst út á öllum teigum og leiknar voru 9 holur á golfvellinum á Dalvík. Þegar Axel kom á fyrstu holu sem er par 3 og 116 metrar af rauðum teigum tók ungi kylfingurinn upp dræverinn og hitti frábært högg.“

Á rauða teiga í vor

„Boltinn lenti rétt fyrir framan flöt og við horfðum svo á hann rúlla inn að stöng og beint í holu,“ segir Brynja Herborg, móðir Axels en hún og faðir drengsins, Englendingurinn Jason James Wright, eru áhugasamir kylfingar og eftir að hafa kynnt syni sínum íþróttina var ekki aftur snúið. Þegar hann fagnaði draumahögginu nefndi Axel að mamma hans hefði ekki farið holu í höggi og þótti það skemmtilegt, segir á kylfingur.is.

Axel James verður níu ára í ágúst. Hann hefur til þessa leikið á byrjendateigum en í vor var ákveðið að færa hann á rauðu teigana, í samráði við þjálfara, til að fá meiri áskorun því fuglar voru að verða daglegt brauð hjá drengnum, segir á kylflingur.is.

Þjálfarar Axels eru Heiðar Davíð Bragason, Stefanía Kristín Valgeirsdóttir og Magnús Birgisson.

„Pressan á drengnum er lítil sem engin, enda eru það þjálfararnir sem sjá um að kenna honum og foreldrarnir sjá um að hafa þetta sem skemmtilegast, svo þetta verði ekki kvöð fyrir hann. Einstaka sinnum þarf þó að minna hann á það sem þjálfarar hafa sagt en aðalatriðið er að hafa þetta skemmtilegt,“ segir Brynja móðir hans í viðtali við 

Smelltu hér til að lesa nánar um Axel James á kylfingur.is.