Fara í efni
Fréttir

Ástæðulaust að hlaupa til og fella skemmd tré

Stórar og myndarlegar aspir við Aðalstræti á Akureyri sem ekki hafa náð að laufgast enn. Rétt er að bíða og sjá hvernig þau spjara sig í sumar og hvort þau ná sér ekki að fullu næsta sumar, segir á vef Skógræktarinnar. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Alaskaösp er nú skemmd víða á landinu en ástæðulaust er að hlaupa til og fella slík tré, segir á vef Skógræktarinnar. Allar líkur séu á því að flest þeirra muni ná sér, að einhverju leyti í sumar og svo að fullu næsta sumar. Þar segir að norðanlands sé líklega um að kenna næturfrostum sem urðu snemma vors þegar tilteknir asparklónar voru byrjaðir að laufgast, en fyrir sunnan séu skemmdirnar vegna kulda og særoks.

„Á Norðurlandi ber líka nokkuð á skemmdum á trjám og þar er það líka öspin sem virðist verst leikin. Svo er að sjá sem tilteknir klónar sem voru í ræktun fyrir fáeinum áratugum og finnast víða í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum hafi verið farnir að laufgast snemma í vor en farið illa í næturfrostum sem gerði um mánaðamótin apríl-maí. Þá er líka nokkuð um skemmdir á lerki, væntanlega af sömu orsökum,“ segir á vef Skógræktarinnar.

„Í báðum tilvikunum er vert að bíða og sjá hvernig trén spjara sig þegar kemur fram á sumarið. Ekki er ólíklegt að þau laufgist að einhverju leyti strax í sumar úr dvalarbrumum sem trén hafa „til vara“ ef svo má segja. Í mörgum tilfellum gætu þau náð að laufgast allvel áður en sumarið er úti. Næsta sumar ættu þau síðan að laufgast eðlilega þótt mögulega kunni að þurfa að snyrta einhver þeirra eða jafnvel fella.

Að rjúka til strax og fella myndarlegar aspir þótt sjái á þeim nú í byrjun sumars er óþarfa fljótfærni. Rétt er að bíða næsta sumars og sjá hverju fram vindur. Mikill missir getur verið að trjám sem tekið hefur áratugi að vaxa.“

Fréttin á vef Skógræktarinnar