Fara í efni
Fréttir

Ásprent-Stíll tekið til gjaldþrotaskipta

Prentsmiðjan Ásprent-Stíll á Akureyri verið tekin til gjaldþrotaskipta og fékk starfsfólk ekki greidd laun núna um mánaðamótin. Rekstur félagsins hefur verið þungur síðustu misseri og áhrif COVID-19 faraldursins hafa haft afgerandi neikvæð áhrif. Þetta kom frá á vef Vikublaðsins rétt í þessu. Blaðið er gefið út af Útgáfufélaginu, sem keypti miðlastarfsemi Ásprents-Stíls fyrir nokkrum mánuðum. Starfsmenn Ásprents-Stíls eru tæplega 20.

Tilraunir til fjárhagslegrar endurskipulagningar með viðskiptabanka félagsins tókust ekki. Skiptastjóri verður skipaður yfir eignum fyrirtækisins og starfsemin heldur áfram í sömu mynd þannig til annað verður ákveðið.

Taka skal fram að Vikublaðið, Dagskráin og Skráin, sem Útgfáfufélagið gefur út og prentuð eru í Ásprent, munu koma út áfram og hefur gjaldþrot Ásprents ekki áhrif á útgáfu þessara miðla.