Fara í efni
Fréttir

Árlegir Bíladagar hefjast á morgun

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Árlegir Bíladagar hefjast á morgun, fimmtudag, og þessari miklu veislu bílaáhugamanna lýkur með spólkeppni á laugardaginn, 18. júní.

Mikil áhersla verður lögð á að allir virði siðareglur Bíladaga og tekið verður hart á þeim brotum sem kunna að koma upp, líkt og gert hefur verið síðustu sumur, að því er segir á vef Akureyrarbæjar. Þá gildir einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.

„Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða sýnileg á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram. Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar eru í óða önn að koma upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og óvarlegan akstur sem er að sjálfsögðu bannaður eins og ávallt,“ segir á vef bæjarins.

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt

Smellið hér til að sjá dagskrá Bíladaga

Fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarbæ, Bílaklúbbi Akureyrar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili, sem funduðu nýverið vegna Bíladaga.