Kjarneðlisfræðingurinn frá Krossanesi!
Aravaka – minningarmálþing um eðlisfræðinginn Ara Brynjólfsson fer fram næstkomandi sunnudag, 27. september, í Menntaskólanum á Akureyri. Tilefnið er 100 ára fæðingarafmæli Ara sem fæddist í Hörgárdal og ólst upp við Eyjafjörð, lengst af í Krossanesi.
Hann „átti glæsilegan alþjóðlegan vísindaferil á sviði kjarnorku- og geislunarfræða,“ segir í tilkynningu um málþingið. „Þrátt fyrir að hafa búið flest fullorðinsárin erlendis var taugin til heimahaganna við Eyjafjörð ætíð sérstaklega sterk hjá Ara. Fullyrða má að hann sé með fyrstu og merkustu fulltrúum á alþjóðavettvangi sem fræða- og menntasamfélagið í kringum Akureyri hefur getið af sér.“
Mikilvæg vísindastörf
Á málþinginu munu dr. Sigurður Emil Pálsson eðlisfræðingur fara yfir mikilvægi vísindastarfa Ara Brynjólfssonar og dr. Ragnheiður Guðmundsdóttir eðlisfræðingur tala um hann sem faglegan áhrifavald.
Einnig munu synir Ara, John og Alan, minnast föður síns og þriðji sonurinn, Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford háskóla, mun segja frá rannsóknum sínum. „Erik er heimsþekktur fyrir frumkvöðlarannsóknir á áhrifum gervigreindar og upplýsingatækni á framleiðni, viðskipti og efnahagsþróun,“ segir í tilkynningu.
- Dagskrá málþingsins má sjá neðar í fréttinni.
Ávörp flytja menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, bæjarstjórinn Akureyrar og fulltrúar Menntaskólans á Akureyri og Háskólans á Akureyri.
Langur og fjölbreyttur vísindaferill
Í tilkynningu um málþingið er greint ítarlega frá ferli Ara og vel fer á því að birta þær upplýsingar hér:
Ari Brynjólfsson (1926–2013) var íslenskur eðlisfræðingur sem átti langan og fjölbreyttan vísindaferil, einkum á sviði kjarn- og geislaeðlisfræði og hagnýtingar geislunar. Hann fæddist á Þúfnavöllum í Hörgárdal 7. desember 1926, ólst upp við Eyjafjörð, lengst af í Krossanesi, og var einn sjö systkina. Tengsl Ara við Akureyri og Menntaskólann á Akureyri voru sterk. Hann varð stúdent frá MA árið 1948 og hefur fjölskylda hans síðar lýst því að þar hafi áhugi hans á eðlisfræði og raungreinum fyrst kviknað.
Að loknu stúdentsprófi hélt Ari til Kaupmannahafnar og nam eðlisfræði við Kaupmannahafnarháskóla og Niels Bohr-stofnunina. Hann lauk mag. scient.-prófi árið 1954 og vann í fyrstu meðal annars að rannsóknum á segulmagni bergs. Eftir stutt rannsóknarstörf við Háskóla Íslands fór hann til Göttingen í Þýskalandi sem Alexander von Humboldt-styrkþegi. Þar þróaði hann og nýtti mælitæki til rannsókna á seguleiginleikum efnis og jarðsegulsviði.
Frá 1957 starfaði Ari við dönsku kjarnorkurannsóknastöðina Risø, þar sem hann stýrði geislatæknilegum rannsóknum. Árið 1965 fluttist hann til Bandaríkjanna og tók við stjórn rannsókna á geislunaraðstöðu í Natick í Massachusetts. Þar beindust rannsóknir hans sérstaklega að geislun matvæla, meðal annars til að auka öryggi og geymsluþol þeirra, og að þróun geislunartækni til dauðhreinsunar. Þetta varð eitt helsta sérsvið hans og aflaði honum alþjóðlegrar viðurkenningar. Hann starfaði síðar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, meðal annars fyrir sameiginlega starfsemi Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA, við þróun og miðlun tækni til geislunar matvæla.
Ari lauk doktorsprófi frá Niels Bohr-stofnuninni árið 1973 með rannsóknum á víxlverkun hraðra hlaðinna agna og efnis. Á síðari árum beindi hann athygli sinni jafnframt að fræðilegri stjarneðlisfræði og setti fram eigin hugmyndir um svonefnt plasma redshift, sem segja má að hafi verið eins konar valkostur við kenninguna um miklahvell.
Akureyri var þó áfram mikilvægur þáttur í sögu Ara. Eftir lát hans árið 2013 færði fjölskylda hans Menntaskólanum á Akureyri minningargjöf í hans nafni til eflingar kennslu í eðlisfræði og raungreinum — við þann skóla þar sem vísindaáhugi hans hafði vaknað meira en sex áratugum áður.
- ARAVAKA
Minningamálþing í tilefni 100 ára fæðingarafmælis Ara Brynjólfssonar eðlisfræðings
Menntaskólanum á Akureyri
Sunnudag 27. september kl. 13.30 - 16.00
DAGSKRÁIN
13.30 – Fundarstjóri, Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi sendiherra, býður gesti velkomna.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
13.40 – Ávarp, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar.
13.45 – Tónlist – „Lysting er sæt að söng“, eftir Snorra Sigfús Birgisson. Flytjendur, Mahaut Ingiríður Matharel, sópran, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.
13.50 – Dr. Sigurður Emil Pálsson, eðlisfræðingur og sérfræðingur í geislavörnum og umhverfisvernd: „Vísindastörf Ara Brynjólfssonar – gildi þeirra fyrr og nú.“
14.10 – Ávarp, Valdís Björk Þorsteinsdóttir brautarstjóri, Menntaskólanum á Akureyri.
14.15 – Tónlist – „MIAMOR“, eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur. Flytjandi: Eydís Úlfarsdóttir, víóla.
14.20 – Ávarp, dr. Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri.
14.25 Hlé.
14.50 – Prófessor Erik Brynjolfsson: „Frá Akureyri til Apollo og gervigreindar – öld framfara.“
15.20 – Tónlist – „Ástin heldur að ég sofi“, eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur og „Amour pense que je dorme“ eftir Pierre Sandrin. Flytjendur: Eydís Úlfarsdóttir, víóla, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.
15.30 – John Brynjolfsson: “Don’t Stop… Thinking About Tomorrow.”
15.40 – Alan Brynjolfsson: „Bandaríski víkingurinn.“
15.50 – Dr. Ragnheiður Guðmundsdóttir, fyrrverandi eðlisfræði- og stærðfræðikennari: „Fyrirmynd sem vísaði veginn – áhrifavaldurinn Ari Brynjólfsson.“
16.00 – Lokaorð, dr. Þórhallur Eyþórsson, prófessor við Háskóla Íslands.