Fara í efni
Fréttir

Áramótabrennan ekki við Réttarhvamm

Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar leitar að nýjum stað fyrir áramótabrennuna í ár. Réttarhvammur kemur ekki lengur til greina sem slíkur að því er fram kemur í minnisblaði sem lagt var fyrir ráðið.

Á fundi ráðsins í liðinni viku var umhverfis- og mannvirkjasviði falið að kanna aðra kosti á brennustæði í ljósi þess að ekki sé hægt að nýta Réttarhvamm vegna reglna um nálægð við íbúðarhús og viðkvæma starfsemi.