Fara í efni
Fréttir

Apótekinu í miðbæ Akureyrar lokað

Jóhanna Baldvinsdóttir, lyfjafræðingur í Apótekarnum í Hafnarstræti, hefur staðið vaktina samfellt í miðbænum undanfarin 15 ár. Hún kom reyndar fyrst til starfa í húsnæðinu sem sumarstarfsmaður árið 1986 en þá hét apótekið Stjörnuapótek.

Apótekið í göngugötunni lokar dyrunum fyrir fullt og allt á föstudag. Þar með verður ekkert apótek lengur starfrækt í miðbæ Akureyrar.

„Það eru orðin svo mörg apótek á Akureyri og þegar hægt er að leggja frítt fyrir utan þau öll, nema þetta, þá velur fólk einfaldlega það sem er þægilegast,“ segir Jóhanna Baldvinsdóttir, lyfjafræðingur hjá Apótekaranum í Hafnarstræti, aðspurð um ástæðuna fyrir því að apótekið sé að loka. Þá hafi heilsugæslan flutt úr miðbænum og það hafi haft sitt að segja fyrir viðskiptin en eins nefnir Jóhanna að það hafi verið erfitt að fá lyfjafræðinga til starfa. „Ungir nýútskrifaðir lyfjafræðingar sækja síður í hefðbundinn vinnutíma í apótekum og velja frekar sjúkrahús eða sveigjanlegri vinnu. Ef við hefðum getað mannað apótekið betur hefði kannski verið hægt að halda þessu gangandi.“

Apótekið í Hafnarstræti er eina apótekið í bænum sem er ekki er með frí bílastæði og heimafólk sækir í það sem er þægilegast. 

Apótek með persónulega þjónustu

Jóhanna hefur verið andlit apóteksins í göngugötunni undanfarin 15 ár og hún á sér marga aðdáendur, enda þykir hún afar úrræðagóð og hjálpsöm.

„Auðvitað reyni ég að aðstoða við allt það sem ég get,“ segir hún hógvær en eins og fastakúnnar hennar vita þá er hún þekkt fyrir að leggja ýmislegt aukalega á sig til að koma sem best til móts við þarfir viðskiptavinanna. Þannig hefur starf hennar í Hafnarstrætinu ekki bara snúist um afgreiðslu lyfja heldur fer oft drjúgur tími í að kenna viðskiptavinum á Heilsuveru, útskýra niðurgreiðslukerfið, að átta sig á muninum á lyfjaskírteini og lyfseðli, og svona mætti lengi telja, að ekki sé talað um öll hlýlegu orðin en stór hluti starfsins snýst um að veita fólki persónulega þjónustu.

„Við höfum alltaf reynt að vera fordómalaus og opið apótek fyrir alla. Hér hafa allir fengið jafna þjónustu hvort sem um er að ræða fólk með fíknivanda eða félagslegar áskoranir. Fólk hefur kunnað að meta það.“ Talið berst að þróun apóteka í landinu en á höfuðborgarsvæðinu hafa lúguapótek verið að ryðja sér til rúms. Þó að slíkt geti hentað einhverjum óttast Jóhanna að persónuleg þjónusta muni hverfa með aukinni sjálfsafgreiðslu og netpöntunum. „Fyrir marga er mjög mikilvægt að fá hlýlegt samtal við manneskju sem skilur og vill hjálpa, sérstaklega ef maður er veikur, það fæst ekki úr lúgu.“


 Jóhanna mun sakna miðbæjarins en býður viðskiptavini velkomna í Apótekarann í Hrísalundi eftir mánaðarmót. 

Ferðamenn með kvef

Á þeim tíma sem Jóhanna hefur starfað í Hafnarstrætinu hefur miðbærinn breyst mikið. Færri heimamenn sækja þangað en aukning ferðamanna yfir sumartímann hefur breytt landslaginu. „Ferðafólk sækir mikið í apótekið til okkar með alls konar vandamál og á sumrin eru ferðamennirnir okkar aðal viðskiptavinir, segir Jóhanna og viðurkennir að það sé örlítið óheppilegt að verið sé að loka apótekinu þegar háannatíminn sé fram undan. „Við fáum mikið af fyrirspurnum um lyf sem ekki eru seld hér á landi og það kemur ferðamönnunum oft á óvart að þau séu ekki fáanleg. Langflestar fyrirspurnir ferðafólks tengjast kvefi eða vandamálum í öndunarfærum, segir Jóhanna og bætir við að hana gruni að loftræstikerfi skemmtiferðaskipanna sé oft sökudólgurinn frekar en íslenska sumarloftið.

Fyrir marga er mjög mikilvægt að fá hlýlegt samtal við manneskju sem skilur og vill hjálpa, sérstaklega ef maður er veikur, það fæst ekki úr lúgu.

Engin vínbúð er lengur í miðbænum, engin matvöruverslun og nú hverfur apótekið. 

Fyrirboði um lokun í miðbænum?

Þrátt fyrir fjölgun ferðamanna í miðbænum finnst Jóhönnu þróunin heilt yfir vera sorgleg á svæðinu. „Þegar þetta apótek lokar þá verður hvorki hægt að fá lyf, tannbursta, áfengi né matvöru í miðbænum. Bærinn er að breytast og við þurfum að spyrja okkur fyrir hvern hann á að vera. Ég vona að miðbærinn verði aftur staður sem Akureyringar vilja heimsækja en sé ekki bara fyrir ferðamenn,“ segir Jóhanna sem á þó sannarlega eftir að sakna miðbæjarins, ekki síst stóru glugganna á apótekinu sem gefi svo mikla birtu og góða sýn á mannlífið utandyra.

„Gluggarnir eru reyndar frekar skítugir núna. Við vorum með svo góðan gluggaþvottamann sem sá um að halda þeim hreinum en hann dó í vetur. Kannski var það fyrirboði um brotthvarf okkar úr miðbænum? segir Jóhanna. Hún minnir þó á að hún sé ekki hætt störfum þó apótekið loki, heldur færi hún sig yfir í apótekið í Hrísalundi. Það sama á við um annað starfsfólk í apótekinu, það mun færast til í starfi og fer annaðhvort í vinnu hjá Apótekaranum í Hrísalundi eða í Lyf og heilsu á Glerártorgi. Segir hún marga viðskiptavini apóteksins hafa tjáð leiða yfir því að apótekið sé að fara úr miðbænum en á sama tíma skilja þeir líka ástæðuna. „Sjálf kveð ég miðbæinn með söknuði en á sama tíma er ég þakklát fyrir yndislega samveru með viðskiptavinum og samstarfsfólki í gegnum árin. Þetta hefur verið góður tími,“ segir Jóhanna og slær botninn í samtalið með þessum orðum; „Sjáumst í Apótekaranum í Hrísalundi.
_ _ _

NÆSTUM 90 ÁRA SAGA

Apótekið sem brátt lokar í göngugötunni á sér næstum 90 ára sögu í miðbænum. Upphaflega hét það Stjörnu-Apótek og var stofnað árið 1936 af KEA. Það var fyrst til húsa í Hafnarstræti 89, við kirkjutröppurnar en það var fyrsta apótekið með samvinnurekstri á Norðurlöndunum. Árið 1973 flutti það í núverandi húsnæði í göngugötunni. KEA rak einnig síðar apótek í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð og árið 1998  keypti félagið Akureyrarapótek, sem Oddur Thorarensen stofnaði árið 1819. KEA lagði síðan öll þessi apótek inn sem eignarhlut í lyfjakeðjuna Lyf og heilsu sem rekur nú Apótekarann í Hrísalundi og Lyf og heilsu á Glerártorgi. (Heimild: sagakea.is) 

Meðfylgjandi mynd er að finna á sagakea.is. Hún er úr Stjörnu-Apóteki í Hafnarstræti 89, ljósmyndari Gunnlaugur P. Kristinsson.