Fara í efni
Fréttir

Anna nýr formaður og Tryggvi varaformaður

Anna Júlíusdóttir og Tryggvi Jóhannsson eftir aðalfundinn í gærkvöldi. Mynd af vef Einingar-Iðju.

Anna Júlíusdóttir var kjörin formaður verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju í gærkvöldi, eins og Akureyri.net greindi þá frá. Á heimasíðu félagsins kemur fram í morgun að Tryggvi Jóhannsson, formaður Matvæla- og þjónustudeildar, verður starfandi varaformaður út starfsárið. Tryggvi mun hefja störf á skrifstofu félagsins þann 15. maí nk.

Björn Snæbjörnsson lét af formennsku í gærkvöldi eftir 31 ár í formannsstólnum. Anna Júlíusdóttir, sem hefur verið varaformaður, sagði undir lok fundarins að það væri stórt verkefni og mikil áskorun að taka við sem formaður.

„Kæru félagar, nú er komið að lokum þessa fundar og langar mig að segja nokkur orð. Að taka við sem formaður í stærsta stéttarfélagi á landsbygginni er stórt verkefni og mikil áskorun. Því vil þakka ykkur traustið,“ sagði Anna.

„Þið félagsmenn eruð félagið, ekki formaðurinn og því er mikilvægt að þið séuð í samskiptum við félagið, takið þátt og mætið á fundi. Mín helsta von er að verkalýðshreyfingin sameinist um að standa saman, en með því náum við bestum árangri.

Ég vil þakka frábærri stjórn, starfsfólki og trúnaðarmönnum fyrir mikilvæg störf, síðast en ekki síst vil ég þakka mentornum mínum honum Birni Snæbjörnsyni fyrir farsælt samstarf sem mun halda áfram fram á haust, en ég er afar heppin með það. Einnig vil ég bjóða Tryggva Jóhannsson velkominn til starfa sem varaformaður félagsins.

Ég minni á að skrifstofan mín er ávallt opin og öllum velkomið að koma og ráða málin.“