Fara í efni
Fréttir

Andri Teitsson ráðinn til Orkusölunnar

Andri Teitsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og framtíðar hjá Orkusölunni, dótturfélagi Rarik, sem er í eigi íslenska ríkisins. Andri hefur verið framkvæmdastjóri Fallorku á Akureyri síðastliðin 14 ár. Orkusalan er hliðstætt félag en margfalt stærra.

„Andri mun leiða vinnu Orkusölunnar við greiningu og þróun nýrra viðskiptatækifæra og einnig vinnu við þróunarverkefni á sviði orkuöflunar og orkunýtingar. Andri mun hefja störf á allra næstu dögum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Orkusalan rekur sex vatnsaflsvirkjanir á Íslandi, þar á meðal Lagarfossvirkjun, Skeiðsfossvirkjun og Rjúkandavirkjun. Félagið selur raforku til heimila, fyrirtækja og stofnana um allt land á samkeppnismarkaði.

Andri Teitsson nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og framtíðar hjá Orkusölunni, dótturfélagi Rarik.

Víðtæk reynsla

Andri hefur undanfarin 14 ár starfað sem framkvæmdastjóri Fallorku á Akureyri, sem fyrr segir, en félagið er að fullu í eigu Norðurorku. Siðastliðin fimm ár hefur Andri jafnframt verið bæjarfulltrúi fyrir L-listann á Akureyri. „Áður hefur Andri meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri Þróunarfélags Íslands og KEA og þar áður var hann forstöðumaður hjá Íslandsbanka. Andri lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS-prófi í iðnaðarverkfræði frá Stanford-háskóla í Kaliforníu. Andri hefur víðtæka reynslu af íslensku atvinnulífi og hefur meðal annars setið í stjórnum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, Marel og Norðlenska matborðsins,“ segir í tilkynningu frá Orkusölunni.

Spennandi verkefni

„Ráðning Andra er í takt við þá stefnu Orkusölunnar að auka eigin orkuframleiðslu til að geta tekið virkan þátt í því stóra verkefni sem orkuskiptin verða á næstu árum,“ segir í áðurnefndri tilkynningu.

„Það er spennandi verkefni fyrir mig að fá tækifæri til að móta nýtt svið viðskiptaþróunar hjá Orkusölunni. Félagið býr að sterkri fjárhagsstöðu og hefur alla burði til að auka raforkuframleiðslu sína umtalsvert á næstu árum. Bæði verður horft til hefðbundinnar nýtingar á vatnsafli og jarðvarma en einnig nýrra orkugjafa svo sem vind- og sólarorku og samspils þessara þátta,“ segir Andri. Hann kveðst munu búa áfram á Akureyri þótt höfuðstöðvar Orkusölunnar séu í Kópavogi. Til gamans má geta þess að nú þegar eru þrír starfsmenn fyrirtækisins búsettir í höfuðstað Norðurlands.

VIÐBÓT 

Sunna Guðmundsdóttir orkuverkfræðingur hefur verið ráðin til að gegna starfi framkvæmdastjóra Fallorku tímabundið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Ásgeir Örn Blöndal, formaður stjórnar Fallorku, þakkar þar Andra, fyrir hönd stjórnarinnar, „fyrir mjög gott og ánægjulegt samstarf og einnig fyrir hans langa og farsæla starf fyrir Fallorku. Við óskum Andra velfarnaðar á nýjum vettvangi. Þá vil ég jafnframt bjóða Sunnu velkomna til starfa fyrir Fallorku, hún hefur undanfarin fimm ár starfað sem verkefnastjóri fyrir Fallorku og er öllum hnútum kunnug hjá félaginu.“

Andri segir sjálfur þar: „Þessi fjórtán ár hjá Fallorku hafa verið fljót að líða og mér er efst í huga þakklæti til allra sem ég hef starfað með hjá Fallorku og móðurfélaginu Norðurorku. Í sameiningu tókst okkur að byggja hina nýju og glæsilegu Glerárvirkjun og jafnframt að styrkja fjárhagsstöðu félagsins umtalsvert. Ýmis áhugaverð verkefni eru á teikniborðinu hjá Fallorku og framtíðin er björt.“