Fara í efni
Fréttir

Andlát: Sigurður Oddsson

Sigurður Oddsson, tæknifræðingur og fyrrverandi deildarstjóri Vegagerðarinnar með nýframkvæmdum á norðaustursvæði, er látinn á 78. aldursári. Sigurður var fæddur 13. september 1944. Hann lést á laugardaginn eftir erfið veikindi.

Eiginkona Sigurðar er Hrefna Hagalín. Börn þeirra eru Oddur, Kristín og Arna. 

Sigurður var formaður íþróttafélagsins Þórs frá 1980 til 1984 og var gerður að heiðursfélaga Þórs á 105 ára afmæli félagsins fyrir tveimur árum, 6. júní 2020.