Fara í efni
Fréttir

Andlát: Sigfríð Ingólfsdóttir

Sigfríð Ingólfsdóttir fv. fiskverkakona á Akureyri er látin, 73 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu, Aðalstræti 5, laugardaginn 9. maí.

Sigfríð var landsþekkt sem mikill stuðningsmaður enska knattspyrnufélagsins Arsenal. Aðalstræti 5 var gjarnan nefnt Arsenal-húsið enda blakti fáni félagsins alla jafna þar fyrir utan og í íbúðinni var sérstakt Arsenal-herbergi þar sem hún varðveitti mikið safn alls kyns minjagripa um félagið. Sigfríð var gerð að heiðursfélaga í Arsenal-klúbbnum á Íslandi. Hún var einnig mikill stuðningsmaður Knattspyrnufélags Akureyrar og tíður gestur á leikjum félagsins.

Arnar Björnsson, þá fréttamaður á Stöð 2, sótti Sigfríði heim árið 2017 og bráðskemmtileg umfjöllun hans birti í kvöldfréttum stöðvarinnar. Fréttina má sjá hér:

Harðasta Arsenal kona landsins skýrði köttinn sinn Wenger

Sigfríð fæddist 7. júní árið 1952 á Akureyri. Foreldrar hennar voru Unnur Kristjana Sigtryggsdóttir og Ingólfur Árni Guðmundsson. Börn hennar eru Unnur A. Bernharðsdóttir, Lára Baldursdóttir, Kristján Atlason og Arnar Hólm Bjarnason.