Andlát: Orri Harðarson

Orri Harðarson, tónlistarmaður og rithöfundur, er látinn eftir nokkurra mánaða baráttu við krabbamein. Orri fæddist á Akranesi 12. desember 1972 og lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 7. júní sl. 52 ára að aldri. Orri bjó um nokkurra ára skeið á Akureyri og var bæjarlistamaður 2017-2018.
Foreldrar Orra eru Hörður Ó. Helgason, fv. skólameistari á Akranesi og knattspyrnuþjálfari, og Sigrún Sigurðardóttir, fv. læknaritari.
Tónlistarferill Orra hófst snemma. Um tvítugt gaf hann út fyrstu plötuna, Drög að heimkomu, og hlaut í kjölfarið Íslensku tónlistarverðlaunin sem bjartasta vonin. Hann starfaði árum saman sem tónlistarmaður, vann einnig mikið við upptökustjórn og útsetti tónlist fyrir aðra.
Síðar sneri Orri sér að ritstörfum; árið 2008 sendi hann sér bókina Alkasamfélagið og síðar tvær skáldsögur, Stundarfró og Endurfundir. Hann starfaði einnig við þýðingar og önnur ritstörf.
Dætur Orra með fv. eiginkonu, Ingu Elísabetu Vésteinsdóttur, eru Karólína, 14 ára, og Birgitta Ósk, 11 ára. Mæðgurnar eru búsettar á Akureyri.
Orri tjáði sig mjög opinskátt um veikindin á Facebook síðu sinni undanfarna mánuði. Þann 20. maí skrifaði hann: