Fara í efni
Fréttir

Andlát: Matthildur Jónsdóttir

Matthildur Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari og fv. prestfrú í Laufási, er látin 87 ára að aldri.

Matthildur var fædd í Kaupmannahöfn þann 2. janúar árið 1936. Hún andaðist á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut á nýársdag, degi fyrir 88. afmælisdaginn.

Matthildur sleit barnsskónum í Vesturbæ Reykjavíkur í hópi tíu systkina. Foreldrar hennar voru Jón Friðrik Matthíasson loftskeytamaður og Jónína Jóhannesdóttir húsfreyja. Matthildur nam háriðn og lauk meistarprófi í því fagi. Um tíma rak hún sína eigin stofu í Skeiðarvogi í Reykjavík auk þess að greiða leikurum í gamla Iðnó við Tjörnina. Árið 1962 giftist Matthildur Bolla Þóri Gústavssyni sóknarpresti í Hrísey, síðar Laufási og að lokum vígslubiskupi á Hólum. Þau áttu fallega og sólríka samfylgd. Séra Bolli lést þann 27. mars árið 2008 eftir tíu ára erfið veikindi.

Bolli og Matthildur eignuðust sex börn sem í aldursröð eru: Hlín, Jóna Hrönn, Gústav Geir, Gerður, Bolli Pétur og Hildur Eir. Matthildur var mikil fjölskyldukona og elskurík móðir en hún var líka bókhneigð, las alla tíð mikið, næstum til hinstu stundar og fylgdist náið með íslenskri pólitík og heimsmálunum stóru. Hún hafði sterkar skoðanir og mikla réttlætiskennd. Matthildur talaði oft um það lán að hafa fengið að búa með barnahópinn sinn í Laufási, þeim fallega stað. Hún var þakklát fyrir sitt lífslán sem hún orðaði svo oft á hausti ævi sinnar.

Útför Matthildar fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ næstkomandi mánudag 8. janúar kl 13.00, þaðan sem séra Bolli var jarðsunginn. Jarðsett verður í Laufáskirkjugarði, í hennar heimasveit.