Fara í efni
Fréttir

Andlát: Jón Laxdal myndlistarmaður

Jón Laxdal Halldórsson, myndlistarmaður, er látinn 71 árs að aldri. Hann fæddist á Akureyri 19. júlí 1950 og lést síðastliðinn föstudag, 12. nóvember, á heimili sínu, Freyjulundi í Hörgársveit.

Foreldrar Jóns voru Halldór Ólafsson úrsmiður og Oddný Laxdal. Bræður hans eru Ólafur Halldórsson og Halldór Halldórsson. Eiginkona Ólafs er Gígja Gunnarsdóttir og eiginkona Halldórs er Halldóra Bjarney Skúladóttir.

Jón varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1971 og stundaði nám í heimspeki við Háskóla Íslands 1971 til 1975. Hann stundaði myndlist daglega alla tíð, auk þess var Jón ljóðskáld og fékkst við tónlist í hljómsveitunum Norðanpiltum og Bjössunum. Hann starfaði sem barnakennari í nokkur ár, við Lundarskóla, kenndi við Myndlistaskólann á Akureyri og starfaði lengi á sambýlum fyrir fatlaða.

Fyrri eiginkona Jóns var Odda Margrét Júlíusdóttir. Hún lést 1993. Dóttir þeirra er Valgerður Dögg Jónsdóttir, eiginmaður hennar er Snorri Arnaldsson. Dætur þeirra eru Odda Júlía Snorradóttir og Ugla Snorradóttir. Kærasti Oddu Júlíu er Róbert Sveinn Lárusson.

Sambýlis- og eiginkona Jóns til 26 ára er Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarmaður. Dóttir þeirra er Brák Jónsdóttir, kærasti hennar er Þórir Hermann Óskarsson. Börn Aðalheiðar eru Þórey Ómarsdóttir og Arnar Ómarsson. Börn Þóreyjar eru Ylfa Marín Kristinsdóttir, Alvar Breki Kristinsson og Amelía Kristinsdóttir.

Jón Laxdal hóf að stunda myndlist í framhaldi af ljóðlist; hann leysti í raun ljóðin upp í myndir og verk hans voru afar ljóðræn, byggð upp á letri og texta og þróuðust með tímanum í alls kyns skúlptúra og samsetta hluti.

Myndlist Jóns hefur verið sýnd mjög víða, bæði hérlendis og erlendis. Listaverkasafnarar í Evrópu og Bandaríkjunum hafa keypt verk hans og myndlist Jóns er í einkasöfnum víða um heim. Listasafn Reykjavíkur og Listasafnið á Akureyri eiga verk eftir Jón. Hann var bæjarlistamaður á Akureyri 1993.

Útför Jóns Laxdal verður laugardaginn 27. nóvember klukkan 13.00 frá Möðruvallakirkju í Hörgárdal. Þeir sem ætla sér að vera við útförina eru beðnir um að fara í hraðpróf.

 Jón Laxdal fyrir opnun yfirlitssýningar á verkum hans, Ekki orð, í Listasafninu á Akureyri 2016. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.