Fara í efni
Fréttir

Andlát: Jón Ingi Cæsarsson

Jón Ingi Cæs­ars­son, fyrsti formaður Samfylkingarinnar á Akureyri og fyrrverandi formaður Póst­manna­fé­lags Íslands, er látinn, 72 ára að aldri. Jón Ingi fæddist í Reykjavík 13. desember 1952 og lést á hjarta­deild Land­spít­al­ans 7. júní síðastliðinn.

For­eldr­ar Jóns Inga hans voru Þór­dís Ei­ríks­dótt­ir og Krist­vin Krist­ins­son en hann var ætt­leidd­ur af hjón­un­um Huldu Ragn­ars­dótt­ur og Cæs­ari Hall­gríms­syni, sem komu með hann til Ak­ur­eyr­ar sex daga gaml­an. Ólst Jón Ingi upp á Eyr­inni og bjó þar nánast alla tíð.

Jón Ingi gekk í Odd­eyr­ar­skóla og Gagn­fræðaskóla Ak­ur­eyr­ar og fór síðar í Póst- og síma­skól­ann. Hann vann allan starfsferilinn hjá Pósti og síma, síðar Ísland­s­pósti og Póst­in­um. Jón Ingi sat lengi í stjórn Póst­manna­fé­lags Íslands, fyrst 1984-1986, aftur 2000-2009 og árið 2017 var hann kjör­inn formaður fé­lags­ins. Gegndi Jón Ingi því embætti til 2023.

Jón Ingi starfaði lengi að bæj­ar­mál­um á Ak­ur­eyri fyrir Alþýðuflokkinn og síðan Sam­fylk­ing­una. Hann var kjör­inn fyrsti formaður Samfylkingarinnar á Ak­ur­eyri við stofn­un flokksins árið 2001 og átti einnig sæti í flokks­stjórn. Jón Ingi var vara­bæj­ar­full­trúi um tíma, var formaður skipulagsnefndar og umhverfisráðs, sat einnig í skólanefnd og í nefnd um svæðis­skipu­lag Eyja­fjarðar. 

Jón Ingi var virk­ur í þjóðfélagsumræðu til margra ára, Akureyri.net hefur til dæmis birt fjölda greina hans síðustu misseri, einkum um skipulags- og umhverfismál, þá síðustu fyrir fáeinum vikum.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Jóns Inga er Guðrún Gunn­ars­dótt­ir. Syn­ir þeirra eru Atli Viðar, f. 1987, og Bjarki Freyr, f. 1992. Dótt­ir Jóns Inga og Mar­grét­ar Pálu Ólafs­dótt­ur er Brynja, f. 1975. Barna­börn­in eru níu og langafa­börn­in þrjú.