Fara í efni
Fréttir

Andarnefjur á Pollinum á ný

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Nokkrar andarnefjur hafa verið á Pollinum í dag. Þær hafa haldið sig á sama stað lengi svo ekki er loku fyrir það skotið að ein þeirra sé veik eða í einhverjum vandræðum. Andarnefja drapst á Polinum nýverið.

Fjöldi fólks hefur verið á Leiruveginum síðasta klukkutímann að fylgjast með dýrunum svo hálfgert umferðaröngþveiti hefur verið á svæðinu.