AN vill láta standa vörð um landsbyggðina
Alþýðusamband Norðurlands (AN) skorar á stjórnvöld að standa vörð um landsbyggðina og tryggja að verðmætasköpun þar skili sér betur aftur til byggðarlaganna. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var samhljóða á 39. þingi sambandsins, sem haldið var á Illugastöðum í Fnjóskadal 24. og 25. september.
Í fréttatilkynningu kemur fram að alls 70 fulltrúar frá níu af ellefu aðildarfélögum AN hafi setið þingið. Áhersla var lögð á byggða- og atvinnumál og í ályktun þingsins er meðal annars bent á mikilvægi þess að íbúar landsbyggðarinnar njóti sambærilegra lífsgæða og tækifæra og íbúar höfuðborgarsvæðisins.
Í ályktuninni segir að dreifðar byggðir landsins skapi stóran hluta gjaldeyristekna þjóðarinnar, meðal annars með framleiðslu og útflutningi. AN krefst þess að eðlilegur hluti þeirra verðmæta sem landsbyggðin skapar skili sér aftur heim í héruðin og telur óásættanlegt að verðmætasköpun eigi sér stað úti á landi án þess að nægilega mikið af henni verði eftir í heimabyggð.
Áherslur þingsins
- AN bendir á að heilbrigðisþjónusta á Íslandi á að vera öllum aðgengileg og óháð búsetu. Gera þarf íbúum landsbyggðarinnar betur kleift að sækja heilbrigðisþjónustu í heimabyggð með því að styrkja rekstrargrundvöll heilbrigðisstofnana með öllum tiltækum ráðum.
- AN vill jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og efnahag með stórauknum framlögum vegna ferða- og dvalarkostnaðar sjúklinga sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda fjarri heimabyggð. Jafnframt verði komið til móts við aðstandendur sem þurfa að fylgja sjúklingum með þátttöku í kostnaði þeirra. Þá er brýnt að tryggja aðgengilegt húsnæði fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra sem þurfa að dvelja í nánd við heilbrigðisstofnanir af heilsufarslegum ástæðum, fjarri heimabyggð.
- AN telur mikilvægt að staðið verði við viðhald og uppbyggingu samgöngu-mannvirkja s.s. vega, flugvalla og annarra samgangna á sjó og á landi. Góðar samgöngur eru forsendur þess að byggð og gott mannlíf þrífist sem víðast um landið.
- AN hafnar með öllu áformum stjórnvalda um að selja flugstöðina á Húsavíkurflugvelli til að bjarga fjárlagagatinu. Þess í stað verði staðið við fjárveitingar til venjulegs viðhalds flugvallarins sem skorið hefur verið niður markvist á undanförnum árum. Í dag liggja húseignir á flugvellinum undir miklum skemmdum vegna aðgerðarleysis stjórnvalda.
- AN hvetur til þess að aukið fjármagn verði sett til eflingar félagslegrar þjónustu og atvinnuuppbyggingar í hinum dreifðu byggðum landsins.
- AN leggur mikið upp úr því að aðgengi fólks að menntun verði jafnað, ekki síst á framhalds- og háskólastigi.
- AN vill tryggja aðgengi landsbyggðarinnar að verslun, opinberri þjónustu, fjarskiptum og raforku á viðráðanlegu verði til húshitunar á köldum svæðum sem og til atvinnurekstrar. Kallað er eftir því að allir landsmenn sitji við sama borð hvað auðlindirnar varðar og greiði sambærilegt verð fyrir rafmagn, heitt og kalt vatn sem og aðra orkugjafa.
- AN kallar eftir því að hvatar verði innleiddir til að fyrirtæki staðsetji starfsemi, nýsköpun og framleiðslu á landsbyggðinni, t.d. með breytingu á tryggingagjaldi, flutningskostnaði, kílómetragjaldi eða félagslegum tilfærslum eftir svæðum.
- AN hvetur til þess að ríkisstofnunum verði fjölgað enn frekar á landsbyggðinni með flutningi frá höfuðborgarsvæðinu út á land.
Fjölbreytt erindi á þinginu
Fjölmargir gestir tóku þátt í þinginu, bæði í eigin persónu og rafrænt. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, 1. varaforseti ASÍ, flutti ávarp, Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri í gervigreind hjá Háskólanum á Akureyri, fjallaði um gervigreind undir yfirskriftinni Gervigreind á mannamáli og Róbert Farestveit, sviðsstjóri Hagfræði- og greiningasviðs ASÍ, fór yfir stöðuna og horfur í samfélaginu.
Björn Gíslason, verkefnisstjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka, kynnti uppbyggingu atvinnusvæðisins í fortíð, nútíð og framtíð. Einar Georgsson, framkvæmdastjóri Brákar, kynnti leigufélögin Bríet og Brák og hugmyndir um leiguhúsnæði framtíðarinnar. Þá fjallaði Trausti Jörundarson um Alþýðusamband Íslands sem samnefnara aðildarfélaganna og urðu góðar umræður um það erindi.
Seinni þingdaginn fjallaði Tryggvi Jóhannsson, formaður Einingar-Iðju og formaður orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum, um hugmyndir að stækkun orlofsbyggðarinnar. Einnig voru ársreikningar AN fyrir árin 2024 og 2025 samþykktir ásamt fjárhagsáætlun fyrir árin 2026 og 2027.
Samþykkt var jafnframt breyting á 8. grein laga AN þannig að kjörnum þingfulltrúum fækkar úr 100 í 70. Með uppbótarfulltrúum, þar sem öll félög fá að lágmarki tvo fulltrúa á hvert þing, verða fulltrúarnir þó 76.
Trausti nýr formaður AN
Tillaga kjörnefndar um nýja stjórn Alþýðusambands Norðurlands fyrir árin 2026–2028 var samþykkt samhljóða.
Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, var kjörinn nýr formaður AN til næstu tveggja ára. Atli Hjartarsson úr Öldunni stéttarfélagi verður varaformaður og Ingimar Atli Knútsson úr Framsýn ritari.
Varamenn í stjórn eru Álfheiður Ösp Haraldsdóttir frá Samstöðu, Eydís Bjarnadóttir frá FVSA og Nanna Steina Höskuldsdóttir frá Framsýn.
Í lok ályktunarinnar er lögð áhersla á að íbúar landsbyggðarinnar njóti sömu lífsgæða og tækifæra og íbúar höfuðborgarsvæðisins og að jafnvægi í byggðaþróun sé forsenda samstöðu og samfélagslegrar sáttar. Þá er kallað eftir byggðastefnu frá stjórnvöldum sem taki mið af áherslum 39. þings Alþýðusambands Norðurlands.