Fara í efni
Fréttir

Alvarlegt slys – ekið á gangandi vegfaranda

Alvarlegt slys varð í miðbæ Akureyrar í morgun þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Þetta kemur fram á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

„Um kl. 10:40 nú í morgun var lögregla kölluð til vegna umferðarslyss er átti sér stað á Strandgötu á Akureyri, skammt frá Bifreiðastöð Oddeyrar. Þarna hafði gangandi vegfarandi orðið fyrir bíl og eru meiðsli hans talin alvarleg,“ segir á síðu lögreglunnar. „Hinn slasaði var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um líðan eða meiðsli hins slasaða. Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum rannsóknardeildar Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og er vinna rannsóknardeildarinnar á vettvangi langt komin. Rannsókn á tildrögum slyssins er á frumstigi og því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um þau að svo stöddu.“