Fara í efni
Fréttir

Alvarlegt slys á rafhlaupahjóli

Slysum á rafhlaupahjólum hefur fjölgað verulega á stuttum tíma.

Kona á fimmtugsaldri hlaut alvarlega höfuðáverka og var lögð inn á gjörgæsludeild eftir slæmt fall á rafhlaupahjóli á Akureyri aðfararnótt sunnudags. Þetta kemur fram í frétt á ruv.is.

Lögregla fékk tilkynningu um meðvitundarlausa konu og var hún flutt á sjúkrahús með alvarlega höfuðáverka. Hún var lögð inn á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Fram kemur í frétt Rúv að slysum á fólki sem flokkuð eru undir reiðhjól og rafhjól hafi fjölgað verulega á undanförnum árum og að sú fjölgun sé alfarið vegna rafhlaupahjóla.