Fréttir
Aldrei meiri aprílsól, hlýtt en mikil úrkoma
11.05.2026 kl. 12:00
Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Aldrei hafa mælst fleiri sólskinsstundir í aprílmánuði á Akureyri en í þeim nýliðna, tæpar 200 stundir, sem er um 70 stundum umfram meðallag. Meðalhiti var 4,9 stig sem er töluvert yfir meðallagi en heildarúrkoma á Akureyri í apríl var hins vegar meira en tvöföld meðalúrkoma áranna 1991 til 2000, 54,6 millimetrar. Svo mikil úrkoma hefur ekki mælst í bænum síðan 1989. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.
Helstu upplýsingar um Akureyri í þessu nýjasta yfirliti eru þessar:
- Í apríl mældust 197,8 sólskinsstundir, eða 70,3 sólskinsstundir umfram meðallag. Frá upphafi mælinga hafa aldrei mælst eins margar sólskinsstundir á Akureyri í apríl.
- Meðalhitinn í apríl mældist 4,9 stig, eða 2,3 stigum yfir meðallagi 1991 til 2020 og 1,3 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára.
- Mestur hiti á landinu mældist við Krossanesbraut á Akureyri 22. apríl – 19,6 stig.
- Á Akureyri var fyrri helmingur aprílmánaðar mjög úrkomusamur, en seinni hlutinn alveg þurr. Þar mældist heildarúrkoma mánaðarins 54,6 mm sem er meira en tvöföld meðalúrkoma áranna 1991 til 2020. Svo mikil á aprílúrkoma hefur ekki mælst á Akureyri síðan 1989.
- Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 8 daga í apríl sem er tveimur fleiri en venjulega.
- Heildarúrkoma fyrstu fjóra mánuði ársins var 182,7 mm á Akureyri. Það er nærri meðallagi áranna 1991 til 2020.
- Á Akureyri mældist meðalhitinn 0,2 stig fyrstu fjóra mánuði ársins sem er 0,1 stigi undir meðallagi 1991 til 2020. Þar raðast meðalhiti janúar til apríl í 39. hlýjasta sæti á lista 146 ára.
Nánar um tíðarfar á landinu í apríl á vef Veðurstofu Íslands: Tíðarfar í apríl 2026

Mynd: Rakel Hinriksdóttir