Akureyrskt smáforrit vekur mikla athygli
Stafræna ofnæmisappið AllergyID, sem þróað hefur verið á Akureyri, hefur hlotið styrk úr Styrktarsjóði Astma- og ofnæmisfélags Íslands. Appið var jafnframt kynnt fyrir vinnuhópi Evrópusamtaka sjúklingafélaga á sviði astma og ofnæmis (EFA)um þann 1. júlí sl., þar sem einnig sátu tveir fulltrúar World Health Organization (WHO). Þar fékk lausnin jákvæðar viðtökur, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Í tilkynningu frá Astma- og ofnæmisfélag Íslands er AllergyID lýst sem nýju og einstöku appi á heimsvísu. Þar kemur fram að um sé að ræða íslenska uppfinningu sem sé fullþróuð og þegar komin í notkun víða um heim. Félagið bendir á að samskiptavandamál vegna tungumála séu ein algengasta ástæða alvarlegra ofnæmisviðbragða utan heimilis. Með ofnæmiskorti á móðurmáli þess sem tekur við upplýsingunum megi draga úr hættu á misskilningi sem geti haft alvarlegar afleiðingar.
Persónulegt ofnæmiskort á 35 tungumálum
AllergyID gerir fólki með fæðuofnæmi kleift að útbúa persónulegt ofnæmiskort á 35 tungumálum. Í appinu er hægt að skrá yfir 700 ofnæmisvalda, skilgreina alvarleikastig, bæta við upplýsingum um hættu á krossmengun og neyðarupplýsingum. Kortið er fyllt út einu sinni og síðan hægt að sýna á veitingastöðum, hótelum, sjúkrahúsum, í skólum eða á ferðalögum, einnig án nettengingar.
Grunnútgáfa appsins er gjaldfrjáls og það er aðgengilegt bæði fyrir iPhone og Android-síma. Við útgáfu náði það þriðja sæti í flokknum Food & Drink í íslenska App Store.
Bjarni Þór Ævarsson, stofnandi AllergyID, segir viðurkenninguna mikilvæga fyrir áframhaldandi þróun verkefnisins. „Það að félagið sem þekkir þennan veruleika best velji að styðja AllergyID er mikil hvatning. Markmiðið hefur alltaf verið að enginn þurfi að setja heilsu sína í hættu vegna tungumálahindrana,“ segir Bjarni Þór í fréttatilkynningunni.