Fara í efni
Fréttir

Akureyringur nýr stjórnarformaður Mílu

Marinó Örn Tryggvason er nýr stjórnarformaður Mílu hf.

Akureyringurinn Marinó Örn Tryggvason er nýr stjórnarformaður Mílu hf. Hann var kjörinn í embættið á síðasta stjórnarfundi félagsins. Marinó tekur við starfinu af Marion Calcine, sem sinnti hlutverki stjórnarformanns tímabundið, en hún situr áfram í stjórninni.

Marinó Örn gegndi áður stöðu forstjóra Kviku banka frá 2019 til 2023, en var áður aðstoðarforstjóri bankans frá 2017. Áður hafði hann starfað hjá Arion banka og forvera hans frá árinu 2002.

Í tilkynningu frá Mílu segir meðal annars:

„Míla er öflugt félag sem sinnir mikilvægum verkefnum og hjá því starfar hæft starfsfólk og stjórnendur. Ég er Akureyringur og það er augljóst að ein af forsendum blómlegrar byggðar á Akureyri eru góðir samgöngu- og fjarskiptainnviðir. Það sama á auðvitað um landið allt því líklega er fátt jafn mikilvægt fyrir uppbyggingu samfélags, atvinnulífs og betri lífskjara en traust og góð fjarskipti. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þessa mikilvæga félags,“ segir Marinó Örn Tryggvason, stjórnarformaður Mílu.

„Við erum afar ánægð með að hafa fengið Marinó til liðs við Mílu. Álítum við það sérstaklega jákvætt að stjórnarformaður fyrirtækis eins og Mílu sé Íslendingur sem þekkir vel til á íslenskum markaði og skilur því vel mikilvægi öruggra fjarskipta fyrir byggðir landsins. Marinó er einnig með ríka reynslu af íslensku atvinnu- og efnahagslífi sem er mikill styrkur fyrir Mílu,“ segir Marion Calcine, fráfarandi stjórnarformaður Mílu.

Míla er fjarskiptainnviðafyrirtæki sem byggir upp og rekur heildstætt fjarskiptakerfi á landsvísu. Míla tengir byggðir landsins við umheiminn og gegnir mikilvægu hlutverki í fjarskiptaöryggi landsins. Fjarskiptakerfi Mílu er grunnur að fjölþættri fjarskiptaþjónustu um land allt.