Fara í efni
Fréttir

Akureyringur lést í slysi á Gæsavatnaleið

Maðurinn sem lést í slysi á Gæsavatnaleið, á hálendinu norðan Vatnajökuls á föstudagskvöldið, var 47 ára Akureyringur, Arnþór Örlygsson. Arnþór, sem var fæddur 16. júní 1979, lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn, stjúpson og barnabörn. Lögreglan greinir frá þessu á Facebook.
 
Arnþór heitinn var starfsmaður fyrirtækisins Kraftbíla. „Það kom stórt skarð í hjarta Kraftbíla og starfsmanna fyrirtækisins um helgina,“ sagði á Facebook síðu fyrirtækisins í dag. „Það mun taka okkur tíma að finna styrkinn okkar aftur og halda áfram, en saman getum við það með hjálp og góðum hugsunum. Því biðjum við um að okkur verði sýnd þolinmæði meðan við öll á Kraftbílum, starfsmenn og fjölskyldur finnum styrkinn okkar á ný.“
 
Slysið átti sér stað þegar 10 manna hópur ferðafólks á jeppum var að losa fastan jeppa. Ljóst var strax í upphafi að um alvarlegt slys var að ræða, viðbragðsaðilar voru sendir á hæsta forgangi á vettvang og Arnþór var úrskurðaður látinn á vettvangi. Björgunarsveitir fluttu samferðafólk hans til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp.