Fara í efni
Fréttir

Akureyri: maí aldrei jafn hlýr hér á landi

Vorið hefur farið mjúkum höndum um Akureyriinga og aðra landsmenn. Maímeðalhitamet var slegið á Akureyri enda veðurblíðan um miðjan mánuðinn með eindæmum. Ferðamenn nutu blíðunnar sem og markaðar á vegum Rauða krossins á Ráðhústorginu. Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Nýliðinn maímánður á Akureyri var sá hlýjasti sem mælst hefur á veðurstöð hér á landi frá upphafi. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir frá þessu á veðurvef sínum blika.is. Hann vísar hér til þess að meðalhitinn á Akureyri í maí hafi verið sá hæsti sem mælst hefur á veðurstöð á Íslandi frá upphafi mælinga.
 
Meðalhiti maímánaðar á Akureyri var „langhæsti meðalhiti í maí sem nokkru sinni hefur mælst á veðurstöð hérlendis“, skrifar Einar í þessum hitapistli á vef sínum. Meðalhitinn var 10,1°C, eða um hálfri gráðu meira en sú tala sem kemur næst. Einar rekur þó smá varnagla við þessa fullyrðingu og skrifar: „Getur vel verið að Veðurstofan við kerfisbundna yfirferð síðan finni lítið eitt hærri hærri tölu en þessa á einhverri annarri veðurstöð.“
 

Gróðurinn hefur notið góðs af hlýindunum að undanförnu með smá ábót af úrkomu að loknum hlýindakaflanum. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Samfelldar mælingar á Akureyri ná aftur til ársins 1882, en í Stykkishólmi ná samfelldar mælingar lengst aftur hér á landi, eða til ársins 1830. Meðalhitinn í Stykkishólmi í maí var 8,7°C, en fyrra met þar var frá 1935 þegar meðalhitinn mældist 8,2°C. Einar tekur þó fram að fyrsta árið sem mælingar fóru fram í Stykkishólmi hafi verið ívið hlýrra, „en óráðlegt er að treysta því gildi,“ skrifar hann einnig.

Hlýjasta vorið, segir Trausti

Einar vísar jafnframt á fróðlega bloggfærslu kollega síns, Trausta Jónssonar veðurfræðings, sem bendir á að vorið, það er apríl og maí, sé það hlýjasta samantekið í byggðum landsins frá upphafi mælinga, ásamt vorinu 1974.

Trausti nefnir einnig að árið, það sem af er, hafi einnig verið óvenjuhlýtt, nema janúar. Þessi byrjun á árinu er sú hlýjasta samkvæmt mælingum síðustu 75 ára á Akureyri og Dalatanga, og sú næsthlýjasta í Reykjavík, segir Trausti. „Köldustu vor 21. aldarinnar (hingað til) voru 2013 og 2015, en langflest ár síðustu áratuga hafa verið hlý, þó ekkert þeirra viðlíka hlýtt sem það sem lýkur í dag,“ skrifar Trausti einnig í sinni bloggfærslu.

Ráðhústorgið á Akureyri í maí. Óhætt er að segja að „lygamælirinn“ svokallaði hafi staðið undir nafni, og þó? Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

„Já þetta eru sannlega áhugaverðir tímar!“ skrifar Einar Sveinbjörnsson og yljar lesendum vonandi eitthvað í aðdraganda vorhretsins sem fram undan er á mánudag og þriðjudag, ef verðurspár ganga eftir. Einar fjallaði einnig nokkuð um hlýindakaflann í maí í pistli þegar þeim kafla var um það bil að ljúka.

Akureyri.net og Blika.is eiga í góðu samstarfi, eins og sjá má á því að þegar flett er niður forsíðu akureyri.net birtast þar nýjustu veðurupplýsingar sem sóttar eru á blika.is.