Fara í efni
Fréttir

Akureyri: 32 í sóttkví, 13 í einangrun

Nú eru 32 í sóttkví á Akureyri vegna Covid-19 og 13 í einangrun. Á Norðurlandi eystra eru alls 39 í sóttkví og 19 í einangrun.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem birt var í gær tekur gildi á miðnætti í kvöld.

Meginefni nýrra sóttvarnareglna

  • Almennar fjöldatakmarkanir 20 manns og börn ekki undanskilin.
  • Nándarregla 2 metrar. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin. Á veitingastöðum og meðal gesta á sitjandi viðburðum er nándarregla 1 metri milli sitjandi gesta.
  • Grímuskylda: Almennt er skylt að nota grímu ef ekki er hægt að virða 2 metra regluna. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
  • Hraðprófsviðburðir: Með notkun hraðprófa er heimilt að halda skipulagða viðburði fyrir allt að 200 manns í sóttvarnahólfi.
  • Sitjandi viðburðir án hraðprófa: Hámarksfjöldi 50 manns. Sem dæmi má nefna sviðslistaviðburði, kvikmyndasýningar, íþróttaviðburðir og sitjandi athafnir trú- og lífskoðunarfélaga.
  • Verslanir og söfn mega taka á móti 50 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum. Fyrir hverja 10 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns. Grímuskylda er í verslunum.
  • Opnunartími veitingastaða o.fl.: Veitingahúsum og öðrum stöðum þar sem áfengisveitingar eru heimilar er óheimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00 og allir gestir eiga að vera farnir hið síðasta kl. 22.00. Sama gildir um einkasamkvæmi á stöðum með vínveitingaleyfi. Nándarregla milli sitjandi gesta á veitingastöðum er 1 metri.
  • Sund- og baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði: Heimilt er að taka má móti 50% af hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2016 og síðar teljast ekki með.

Skólahald

  • Á öllum skólastigum miðast hámarksfjöldi barna/nemenda við 50 einstaklinga í rými.
  • Hámarksfjöldi starfsfólks í sama rými eru 20 manns og starfsfólki er heimilt að fara á milli rýma.
  • Nálægðarmörk: Almennt gildir 2 metra nálægðarregla en sé ekki unnt að tryggja 2 metra reglu er grímuskylda. Leikskólabörn eru undanskilin nálægðarreglu.
  • Grímuskylda: Almennt er skylt að nota grímu ef ekki er hægt að virða 2 metra regluna. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.

Sviðslistir og kórastarf

  • Æfingar og sýningar með snertingu eru leyfðar fyrir allt að 50 starfsmenn á sviði. Grímur skal nota eftir því sem hægt er nema þegar listflutningur fer fram og leitast við að fylgja 2 metra reglunni.
  • Fjöldi sýningargesta: Heimilt er að taka á móti allt að 50 sitjandi gestum í hverju hólfi sem allir bera grímu og sitja í númeruðum sætum. Auk 50 fullorðinna mega vera 100 börn án hraðprófs í sama rými. Hægt er að taka á móti allt að 200 gestum sé fylgt reglum um hraðprófsviðburði. Viðhafa þarf 1 metra reglu milli sitjandi gesta.
  • Sýningarhlé: Heimilt er að gera hlé á sýningum en áhorfendur skulu hvattir til að halda kyrru fyrir í sætum sínum.
  • Áfengisveitingar eru óheimilar í tengslum við sýningar, hvort sem er fyrir, í hléi eða eftir.
  • Íþróttaæfingar og keppnir barna og fullorðinna eru heimilar, jafnt með eða án snertingar, fyrir allt að 50 manns.