Akureyrarvaka – Hvað er á dagskrá í dag?
Akureyrarvaka, árleg afmælishátíð bæjarins, hefst í dag með nokkrum viðburðum en á morgun er gríðarlega margt í boði hér og þar í bænum.
Löng hefð er fyrir því að Akureyrarvaka sé haldin sem næst afmælisdegi bæjarins, 29. ágúst, og svo skemmtilega vill til að þessu sinni að hann ber upp á laugardag. Á morgun verður afmælinu því fagnað á réttum degi, þegar 164 ár verða síðan Akureyri fékk kaupstaðarréttindi.
- Akureyrarvaka verður sett formlega á Rökkurró, samkomu sem hefst í Lystigarðinum kl. 20.40 í kvöld.
Gítarleikarinn Ivan Mendez gefur tóninn en Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar setur hátíðina með ávarpi kl. 21.00. Að ávarpi bæjarstjóra loknu mun Páll á Húsafelli spila á steinhörpu við undirleik Hilmars Arnar Agnarssonar áður en dansarar frá listdansskóla Steps Dancecenter sýna dansverkið FLOW. Eftir það taka flæðir djassinn úr höndum og hljóðfærum tríósins THE Tríó. Áætlað er að dagskrá ljúki um kl. 22:00.
DAGSKRÁIN Í DAG
Smellið á rauða letrið til að sjá nánar upplýsingar um þann tiltekna viðburð.
- 08:15–19:00 – Fortíð og framtíð (Amtsbókasafnið) (líka opið 29. ágúst 11:00–16:00)
- 09:00–18:00 – Akureyrarvaka hjá Heilbrigð húð (Snyrtistofan Heilbrigð húð)
- 10:30 og 17:00–18:40 – Akureyrarmót UFA og Kjarnafæðis (Frjálsíþróttavöllurinn á Þórssvæðinu)
- 13:30–14:30 – Dægurlagatónleikar á Hlíð (Aðeins fyrir íbúa og aðstandendur)
- 15:30–16:30 – Dægurlagatónleikar í Lögmannshlíð (Aðeins fyrir íbúa og aðstandendur)
- 17:00–19:00 – LEGO Bærinn - Sýningaropnun (Iðnaðarsafnið) (opið líka 29. ágúst 11:00–17:00)
- 18:00–19:15 – Eyríki - heimildarmynd um Grímsey (Sambíó)
- 18:00–20:00 – Þrykkt blæbrigði - Sýningaropnun (Deiglan) (opið líka 29. ág. 12–20 & 30. ág. 12–15)
- 19:30–21:00 – Froðudans í Sundlaug Akureyrar (Sundlaug Akureyrar)
- 20:00 – HRUN (Mjólkurbúðin, til 5. september)
- 20:00–00:00 – Vamos Rooftop Set á Akureyrarvöku (Vamos)
- 20:40–22:00 – Rökkurró í Lystigarðinum á Akureyrarvöku 2026 (Lystigarðurinn)
- 21:00 – OPNUN: Út í garð - Charlotte Søeborg (Lystigarðurinn)
- 21:10–21:25 – Rökkursöngur steinanna (Lystigarðurinn)
- 21:22–21:27 – FLÆÐI (Lystigarðurinn)
- 21:30–22:00 – THE Tríó á Rökkurró (Lystigarðurinn)
- 22:00 – Ómur – Puruñeka Duo (Menningarhúsið Hof)
- 22:00–00:00 – Tónleikar á Presley Grill (Kaupvangsstræti 23)
- 22:00–23:30 – Kvartett Kristjáns Edelstein á Lyst (LYST)
- Allan sólarhringinn – Brúðkaupsveislan (Gluggasýning, Hafnarstræti 88 frá 27. ágúst til 17. september)
Að venju verður tilteknum götum lokað vegna þeirra viðburða og mannfjölda sem væntanlega sækir miðbæinn um helgina. Einnig var vakin athygli á því í vikunni að óheimilt að fara með hunda á samkomur eins og Akureyrarvöku. Þá er umferð dróna bönnuð nema með leyfi hátíðarhaldara og flugturns Akureyrarflugvallar.
- Sjá frétt akureyri.net í vikunni:
Götulokanir, drónabann og hundarnir heima
Alla viðburði Akureyrarvöku má sjá á vefsíðu hátíðarinnar akureyrarvaka.is og á Facebook- síðu Akureyrarbæjar.
