Fara í efni
Fréttir

Akureyrarvaka – 161 árs afmæli bæjarins

Frá Akureyrarvöku á síðasta ári. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Hin árlega Akureyrarvaka verður um helgina. Hún er jafnan haldin sem næst afmæli bæjarins sem er þann 29. ágúst, næsta þriðjudag; nú er liðið 161 ár síðan Akureyrarbær fékk kaupstaðarréttindi og verður því fagnað með ýmsu móti um helgina.

Á dagskrá eru fleiri en 70 fjölbreyttir viðburðir víðsvegar um bæinn frá föstudeginum 25. til sunnudagsins 27. ágúst.

Akureyri.net mun að sjálfsögðu fylgjast grannt með gangi máli og birta dagskrá hvers dags.

Fjölmargt verður í gangi, til dæmis þetta:

  • Opinber heimsókn forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, skipar háan sess um helgina og hann setur meðal annars Akureyrarvöku á Rökkurró í Lystigarðinum kl. 20 á föstudagskvöld.
  • Viðamikil afmælisdagskrá verður í Listasafninu á Akureyri sem heldur upp á 30 ára afmæli sitt. Fimm nýjar sýningar verða opnaðar og fjöldinn allur af uppákomum verða í safninu í tilefni afmælisins.
  • Draugaslóð á Hamarkotstúni á föstudagskvöld
  • Sönglagatónleikar með GDRN og Magnúsi Jóhanni í Hofi á föstudagskvöld
  • Tékkneski oktettinn HLASkontraBAS í Listasafninu á föstudagskvöld
  • Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa við Glerárskóla á laugardag
  • Forsetahjónin opna Sögustaurasýningu. Ganga um Innbæinn hefst við Laxdalshús kl. 10 á laugardagsmorgun.
  • Barnasöngverk með Hnoðra í norðri í Menntaskólanum á föstudag
  • Leiðsögn meðal huldufólks og álfa í Lystigarðinum á föstudag
  • Sirkustónar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi kl. 14.00 á laugardag
  • Tweed Ride, hjóltúr sem hefst við Akureyrarkirkju kl. 14.00 á föstudag
  • Tónleikar með Diddú og Jónasar Þóris í Hamraborg í Hofi á laugardagskvöld
  • Skemmtisiglingar með Húna II

Í tilkynningu segir jafnframt:

„Hátíðin nær hápunkti sínum þegar efnt verður til stórtónleika á Ráðhústorgi kl. 20.30 á laugardagskvöldið. Fram koma Bríet, Á móti sól, Kári Egils og hljómsveit og síðast en ekki síst Akureyringinn Hrefna Loga. Auk þeirra fá kynnar kvöldsins Jónína Björt og Ívar Helga til sín á sviðið hæfileikaríkt heimafólk sem lætur ljós sitt skína.

Undanfarin ár hefur Akureyrarvaka teygt sig yfir á sunnudag og að þessu sinni verður hægt að fara í morgunflot í sundlauginn með Flothettu, listsýningar verða opnar og leiðsagnir um fjölda sýninga í Listasafninu yfir daginn. Jafnframt bjóða tónlistarkonurnar Ásdís Arnar, Dagbjört Ingólfs og Steinunn Hailer upp á huggulega heimatónleika.“

Allar upplýsingar um hátíðina á akureyrarvaka.is