Fréttir
Aka þarf hjáleið í dag vegna malbikunar
27.05.2026 kl. 09:00
Vegna malbikunarframkvæmda verður Borgarbraut lokuð við hringtorgið norðan við Glerártorg í dag, miðvikudaginn, frá klukkan 10.00 og fram á kvöld, eða þar til malbikun lýkur.
Hjáleið verður um Gleráreyrar meðan á lokun stendur; vilji ökumenn komast upp Borgarbraut frá Glerárgötu þarf sem sagt að aka vestur fyrir verslunarmiðstöðina Glerártorg – aftan við hana, eins og sýnt er á myndinni. „Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á svæðinu og virða umferðarmerkingar,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.