Fara í efni
Fréttir

Áhrif lokunar fangelsis hafa ekki verið metin

Ekki hefur verið gerð sérstök úttekt á áhrifum lokunar fangelsins á Akureyri sumarið 2020 á fangelsiskerfið, ekki hefur farið fram sérstakt mat á félagslegum og mannlegum þáttum og kostnaðarliðir af ýmsu tagi hafa ekki verið teknir saman með heildstæðum hætti og bornir saman við rekstrarsparnað sem hlaust af lokun fangelsisins.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skriflegu svari dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, við fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar alþingismanns Norðausturkjördæmis um áhrif fangelsins á Akureyri á sínum tíma. Svar ráðherra var birt á vef Alþingis í dag.

Það var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sem ákvað á sínum tíma að loka fangelsinu á Akureyri að tillögu Fangelsismálastofnunar.

Ekki verður séð ...

  • Í svari ráðherra segir m.a. að þrátt fyrir lokun fangelsisins verði ekki séð „að afkastageta fangelsiskerfisins hafi dregist saman, t.d. ef litið er til fjölda afplánunardaga í fangelsum landsins.“ 
  • Njáll spurði hvort lokun fangelsins hafi orðið til þess að stytta biðlista eftir afplánun eins og haldið var fram á sínum tíma. Fram kemur í svari ráðherra að boðunarlistar hafi lengst á undanförnum en líta verði til þess að þörfin fyrir afplánunarrými hafi aukist verulega á sama tíma. „Fjöldi dæmdra fangelsisára hefur farið vaxandi, úr um 360 árum árið 2019 í um 553 ár árið 2025. Jafnframt hefur gæsluvarðhaldsföngum fjölgað verulega, en þeir voru að meðaltali um 30 á dag árið 2019 samanborið við um 64 árið 2025. Gæsluvarðhaldsfangar hafa forgang að vistun í fangelsum og hefur fjölgun þeirra því áhrif á ráðstöfun afplánunarrýma,“ segir í svarinu.

Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Myndir af vef Alþingis.

  • Varðandi kostnað segir að miðað við þær upplýsingar sem dómsmálaráðuneytið hafi undir höndum verði ekki séð að kostnaður lögreglunnar á Norðurlandi, m.a. vegna flutninga á gæsluvarðhaldsföngum og samskipta lögreglu við þá, sé þannig að hann breyti þeim forsendum sem lágu að baki lokun fangelsisins.
  • Þegar tekin var ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri var staðan sú að um 70% fanga sem þar voru vistaðir áttu lögheimili utan Akureyrar. Flestir fanganna voru því vistaðir fjarri heimilum sínum og fjölskyldu.
  • Vegna persónulegra tengsla við starfsfólk voru fangar frá Norðurlandi í mörgum tilvikum vistaðir í fangelsum á Suðurlandi á meðan fangar frá öðrum landshlutum voru vistaðir á Akureyri, segir í svari ráðherra.

Spurningarnar og svörin

Hér má sjá spurningar Njáls Trausta og svör ráðherra, 

1. Hefur ráðuneytið gert úttekt eða greint með heildstæðum hætti áhrif þess að loka fangelsinu á Akureyri, nú þegar meira en hálfur áratugur er liðinn frá þeirri ákvörðun?

Sumarið 2020 féllst þáverandi dómsmálaráðherra á tillögu Fangelsismálastofnunar um lokun fangelsisins á Akureyri. Ekki hefur verið gerð sérstök úttekt á áhrifum lokunarinnar á fangelsiskerfið. Þrátt fyrir lokun fangelsisins verður aftur á móti ekki séð að afkastageta fangelsiskerfisins hafi dregist saman, t.d. ef litið er til fjölda afplánunardaga í fangelsum landsins.

Í fangelsinu á Akureyri voru að jafnaði átta til tíu fangar vistaðir og var fangelsið minnsta rekstrareining Fangelsismálastofnunar. Kostnaður við hvert afplánunarrými var umtalsvert hærri en í öðrum fangelsum landsins. Fangelsinu var lokað í september 2020 og var lokunin meðal þeirra aðgerða sem lagðar voru til í því skyni að bæta nýtingu fjármagns innan fangelsiskerfisins og stuðla að betri nýtingu afplánunarrýma.

2. Liggja fyrir upplýsingar um hve mikið af meintri hagræðingu með lokun fangelsisins hefur tapast vegna:
a. aukins ferðakostnaðar með t.d. gæsluvarðhaldsfanga af norðaustanverðu landinu til höfuðborgarsvæðisins,
b. óhagræðis og skertrar útkallsgetu lögreglunnar á Norðurlandi sem nýtur ekki lengur samlegðaráhrifa við fangelsi á svæðinu,
c. aukins ferðakostnaðar lögreglu að norðan vegna samskipta við gæsluvarðhaldsfanga á höfuðborgarsvæðinu,
d. aukins kostnaðar annars staðar í lögreglu- og fangelsiskerfinu?

Þeir kostnaðarliðir sem spurt er um hafa ekki verið teknir saman með heildstæðum hætti og bornir saman við rekstrarsparnað sem hlaust af lokun fangelsisins. Miðað við þær upplýsingar sem dómsmálaráðuneytið hefur undir höndum verður þó ekki séð að kostnaður lögreglunnar á Norðurlandi, m.a. vegna flutninga á gæsluvarðhaldsföngum og samskipta lögreglu við þá, sé þannig að hann breyti þeim forsendum sem lágu að baki lokun fangelsisins. Þá er rétt að taka fram að þegar fangelsinu á Akureyri var lokað var komið til móts við embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra með auknum fjárveitingum um sem nemur fjórum stöðugildum. Þá var húsnæði sem nýtt hafði verið undir fangelsi breytt og það tekið til afnota fyrir lögregluembættið og nýtt til stækkunar á starfsaðstöðu þess.

3. Hefur lokun fangelsisins á Akureyri orðið til þess að stytta biðlista eftir afplánun eins og haldið var fram á sínum tíma?

Þótt boðunarlistar hafi lengst á undanförnum árum verður að líta til þess að þörfin fyrir afplánunarrými hefur aukist verulega á sama tíma. Fjöldi dæmdra fangelsisára hefur farið vaxandi, úr um 360 árum árið 2019 í um 553 ár árið 2025. Jafnframt hefur gæsluvarðhaldsföngum fjölgað verulega, en þeir voru að meðaltali um 30 á dag árið 2019 samanborið við um 64 árið 2025. Gæsluvarðhaldsfangar hafa forgang að vistun í fangelsum og hefur fjölgun þeirra því áhrif á ráðstöfun afplánunarrýma.

4. Í ljósi þess að bæði gæsluvarðhalds- og lokuð fangelsisrými hafa mánuðum og misserum saman verið yfirfull og kerfið í raun sprungið, hefði þá ekki verið full þörf fyrir tíu rými í viðbót á Akureyri með hliðsjón af kerfinu í heild?

Eins og að framan greinir sýnir þróun síðustu ára að þörf fyrir fangarými hefur aukist. Við núverandi aðstæður, þar sem nýting fangelsa er mjög mikil og skortur er á rýmum, er ljóst að tíu viðbótarrými myndu skipta máli fyrir fangelsiskerfið í heild.

Þegar fangelsinu á Akureyri var lokað var fjárhagsstaða Fangelsismálastofnunar þannig að ekki var unnt að fullnýta fangelsin á Hólmsheiði og Litla-Hrauni. Hagræðið sem fékkst af því að loka fangelsinu á Akureyri var m.a. nýtt til þess að auka nýtingu á fangarýmum í stærri fangelsunum.

Jafnframt hefur verið unnið að öðrum aðgerðum sem ætlað er að stytta boðunarlista. Má þar m.a. nefna breytingar á skilyrðum samfélagsþjónustu sem hafa gert fleiri einstaklingum kleift að afplána refsingu með þeim hætti. Þá hafa verið gerðar breytingar á reglum um reynslulausn, m.a. með tímabundnu ákvæði sem heimilar erlendum ríkisborgurum sem sæta brottvísun að lokinni afplánun að fá reynslulausn að liðnum þriðjungi refsitímans, að uppfylltum nánari skilyrðum. Markmið þessara aðgerða er að mæta auknu álagi á fangelsiskerfið, stytta boðunarlista og draga úr fyrningu refsinga.

5. Hvaða framtíðarsýn hefur ráðherra fyrir norðaustanvert landið, sbr. svæðisborgarhlutverk Akureyrar, hvað þetta snertir? Er það að mati ráðherra boðlegt til lengri tíma litið að ekkert fangelsi sé starfrækt nyrðra?

Dómsmálaráðuneytið hefur lagt áherslu á uppbyggingu fangelsiskerfis sem uppfyllir kröfur um öryggi, mannréttindi, aðbúnað fanga og öruggt starfsumhverfi fyrir starfsfólk. Mikilvægur þáttur í þeirri uppbyggingu er hið nýja öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni sem verður fyrsta fangelsið hér á landi sem er sérstaklega hannað og byggt sem öryggisfangelsi. Í þeirri uppbyggingu er lögð áhersla á færri en öflugri fangelsiseiningar, fremur en að reka mörg smærri fangelsi þar sem getur reynst erfitt að tryggja sambærilegt öryggi, aðbúnað og þjónustu. Betur útbúin og sérhæfðari fangelsi skapa jafnframt betri forsendur fyrir endurhæfingu, nám og vinnu og önnur úrræði sem styðja við farsæla endurkomu einstaklinga í samfélagið að lokinni afplánun.

Við mat á framtíðarfyrirkomulagi fangelsa þarf að horfa til þarfa fangelsiskerfisins í heild frekar en að einblína á einstök svæði. Mikilvægt er að tryggja að fjármunir ríkisins nýtist sem best til að efla aðbúnað og öryggi, bæði fanga og starfsfólks, og aðgengi að sérhæfðri þjónustu. Áherslan er lögð á að úrræðin þjóni bæði einstaklingunum sjálfum og samfélaginu í heild til lengri tíma.

6. Hafa félagslegir og mannlegir þættir, eins og velferð fanga og fjölskyldna þeirra, verið metnir í tengslum við lokun fangelsisins á Akureyri?

Þegar tekin var ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri var staðan sú að um 70% fanga sem þar voru vistaðir áttu lögheimili utan Akureyrar. Flestir fanganna voru því vistaðir fjarri heimilum sínum og fjölskyldu.

Ekki hefur farið fram sérstakt mat á félagslegum og mannlegum þáttum en þegar ákvörðunin var tekin lá þó fyrir að staðsetning fangelsisins á Akureyri tryggði ekki að fangar frá Norðurlandi gætu afplánað þar, enda gat reynst erfitt að vista einstaklinga frá svæðinu í fangelsinu vegna persónulegra tengsla við starfsfólk. Af þeim sökum voru fangar frá Norðurlandi í mörgum tilvikum vistaðir í fangelsum á Suðurlandi á meðan fangar frá öðrum landshlutum voru vistaðir á Akureyri.

Vistun í fangelsi fjarri heimabyggð getur haft áhrif á möguleika fanga til að viðhalda tengslum við fjölskyldu og aðstandendur, en við ákvörðun um vistunarstað þarf jafnframt að líta til annarra þátta, svo sem öryggis, aðstæðna viðkomandi, meðferðarþarfa og nýtingar fangelsisrýma, sem og annarra persónulegra tengsla í fámennu samfélagi.

Frá lokun fangelsisins hafa ekki komið fram upplýsingar sem benda til þess að vistun einstaklinga af Norðurlandi í öðrum fangelsum landsins hafi almennt skapað sérstakan vanda umfram það sem fylgir vistun fanga fjarri heimabyggð annars staðar á landinu.