Fara í efni
Fréttir

Ágúst Torfi hættir sem forstjóri KN

Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Kjarnafæðis Norðlenska (KN), lætur af störfum í lok mánaðarins. Hann hefur verið forstjóri KN frá sameiningu Kjarnafæðis og Norðlenska árið 2021 og var þar áður framkvæmdastjóri Norðlenska frá 2015; hefur því stýrt KN og öðrum forvera þess í alls 11 ár.

Kaupfélag Skagfirðinga keypti Kjarnafæði Norðlenska fyrir nokkrum misserum.

Ágúst Torfi segir tímann hjá Norðlenska og síðan KN hafa verið viðburðaríkan. Sameining Kjarnafæðis og Norðlenska árið 2021 hafi verið ein stærsta hagræðingaraðgerð í úrvinnslu landbúnaðarvara um langt árabil og sala félagsins til Kaupfélags Skagfirðinga árið 2024 upphafið að enn frekari hagræðingu, neytendum og bændum til heilla.

„Þessi ár hjá KN og Norðlenska hafa verið lærdómsrík og gefandi,“ segir Ágúst Torfi. „Starfsmenn fyrirtækisins eru mjög samheldinn og góður hópur sem hefur staðið sig mjög vel á umbreytingatímum. Á þessum árum höfum við náð að hagræða mikið, sameina Kjarnafæði og Norðlenska og loks selja sameinað fyrirtæki til nýrra eigenda sem hafa skýra framtíðarsýn,“ segir fráfarandi forstjóri.

„Ég kveð Kjarnafæði Norðlenska, stjórnina, samstarfsfólkið og ekki síst þá fjölmörgu bændur sem ég hef verið í reglulegum samskiptum við öll þessi ár, með kærri þökk fyrir samstarfið,“ segir Ágúst Torfi.