Fara í efni
Fréttir

Áfram unnið að skipulagi við Tónatröð

Samþykkt var í skipulagsráði Akureyrar í vikunni að heimila verktakafyrirtækinu SS Byggi að halda áfram vinnu við tillögu að  deiliskipulagsbreytingu við Tónatröð.

Á fundinum var lögð fram umsögn Veðurstofu Íslands varðandi minnisblað GeoTek ehf. um jarðvegsaðstæður og byggingarhæfi lóða. Jafnframt var lagt fram minnisblað verkfræðistofunnar Mannvits um umferðargreiningu í tengslum við áhrif af byggingu 70 íbúða við Tónatröð. 

Ekki teljandi áhrif á umferðarflæði?

„Áhrif umferðar vegna uppbyggingar við Tónatröð eru metin á vegakerfi þess og tenginga við aðliggjandi gatnakerfi. Umferð er annars vegar reiknuð fyrir uppbyggingu og hins vegar eftir uppbyggingu. Samkvæmt útreikningum hefur uppbyggingin ekki teljandi áhrif á umferðarflæði á nærliggjandi gatnamótum,“ segir í minnisblaði Mannvits.

Fimm hús en ekki fjögur

„Meirihluti skipulagsráðs Akureyrar samþykkti á fundinum að heimila umsækjanda að vinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem byggir á áður innsendum gögnum. Í þeirri vinnu þurfi þó að gera ráð fyrir að umfang uppbyggingar minnki niður í fjögur hús en samkvæmt upphaflegum tillögum var gert ráð fyrir fimm húsum. Jafnframt þurfi að skoða sérstaklega afmörkun svæðisins og skuli breyting á deiliskipulagi einvörðungu ná til svæðis vestan megin við Tónatröð,“ segir í fundargerð skipulagsráðs.

Skipulagsráð fól skipulagsfulltrúa einnig að halda áfram vinnu við breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við ofangreint og jafnframt óska eftir heimild Minjastofnunar til að fjarlægja hús á lóð Tónatraðar 8 í samráði við eigendur.

„Markmiðið með þeirri tillögu sem liggur fyrir er að nýta svæðið betur en gert er ráð fyrir í gildandi skipulagi með því að byggja fjölbýlishús við Tónatröð. Skipulagslýsing vegna breytinganna var í kynningu frá 15. desember til og með 12. janúar. Samtals bárust 113 ábendingar af ýmsum toga, meðal annars varðandi umfang og fjölda bygginga á svæðinu, sem hafa verið og verða áfram hafðar til hliðsjónar við skipulagsvinnuna,“ segir í áðurnefndri fundargerð.