Fara í efni
Fréttir

Áfram malbikað í Kjarnagötunni

Hluti Kjarnagötu verður lokaður í dagn vegna malbiksframkvæmda, frá hringtorgi við Bónus að Golfvallarvegi.

Malbikunarframkvæmdir halda áfram í hluta Kjarnagötu í dag og nú er komið að kaflanum frá hringtorginu við Bónus að Golfvallarvegi. Hann verður lokaður kl. 9-19. Gatnamót við Ásatún og Hamratún verða lokuð, en umferð um Jaðarstún fer um Hamratún. Golfvallarvegurinn verður opinn. Framkvæmdirnar hafa áhrif á leiðaval strætisvagna nr. 1, 2, 5 og 6.

Þessi lokun hefur sömu áhrif á leiðir strætisvagna og í gær þegar annar hluti götunnar var malbikaður.
 
  • Leið 1 ekur ekki um Kjarnagötu heldur fer niður Miðhúsabraut þegar komið er út úr Þórunnarstrætinu. Síðan er ekið upp Naustagötu og þá sömu leið til baka að Mýrarvegi þar sem vagninn fer aftur inn á sína leið.
    Eftirtaldar stöðvar verða lokaðar: Sómatún, Naustaskóli og Ásatún.
  • Leið 2 ekur ekki um Kjarnagötu. Þess í stað ekur hún niður Miðhúsabraut þegar komið er út úr Dalsbrautinni, þ.e. farið er eftir Þingvallastræti inn á Miðhúsabraut við MS.Síðan er ekið upp Naustagötu og þá sömu leið til baka að Þórunnarstræti þar sem vagninn fer aftur inn á sína leið.
    Eftirtaldar stöðvar verða lokaðar: Bónus, Naustaskóli og Sómatún.
  • Leið 5 ekur ekki Kjarnagötuna í gegnun Naustahverfið. Þessi í stað fer vagninn eðlilega leið um Hagahverfi, en síðan niður Naustagötu og um Naustabraut út á Miðhúsabraut að Mýrarvegi þar sem vagninn fer aftur inn á sína hefðbundnu leið.
    Eftirtaldar stöðvar verða lokaðar: Sómatún, Naustaskóli og Ásatún. Hægt verður að nota stoppstöðina „Vallartún“.
  • Leið 6 ekur ekki Kjarnagötuna um Naustahverfi. Þess í stað ekur vagninn niður Miðhúsabraut frá Mýrarvegi og þaðan inn á Naustabraut og síðan upp Naustagötu. Þaðan ekur vagninn eðlilega leið um Hagahverfið frá hringtorginu við Naustagötu og Kjarnagötu.
    Eftirtaldar stöðvar verða lokaðar: Bónus, Naustaskóli og Sómatún. Hægt verður að nota stoppstöðina „Vallartún“.

Leið 1, breyttur akstur 16. júlí vegna lokunar hluta Kjarnagötu.

Leið 2, breyttur akstur 16. júlí vegna lokunar hluta Kjarnagötu.

Leið 5 og 6, breyttur akstur 16. júlí vegna lokunar hluta Kjarnagötu.