Fréttir
Afmæliskaffi í dag hjá Landsbankanum og TM
20.08.2026 kl. 06:00
Landsmönnum er boðið í afmæliskaffi í útibúum Landsbankans og TM víða um land í dag en bæði bankinn og tryggingafélagið eiga stórafmæli um þessar mundir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Tilkynningin er svohljóðandi:
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni er landsmönnum boðið að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis stór tímamót fyrir TM sem fagnar 70 ára afmæli. Það er því sannarlega tilefni til að gera sér glaðan dag saman.
Boðið verður upp á léttar veitingar og góða stemningu í 30 útibúum Landsbankans víðs vegar um land. Við hvetjum viðskiptavini til að líta við og fagna þessum tímamótum með okkur. Útibúin á Breiðdalsvík, Djúpavogi, Kópaskeri og Skagaströnd eru ekki opin á fimmtudögum og því verða ekki veisluhöld þar í þetta sinn.
Kíktu við í útibú nálægt þér og fagnaðu með okkur. Við hlökkum til að sjá þig!
Landsbankinn var lengi til húsa við Ráðhústorg á Akureyri eins og alþjóð var kunnugt, eða því sem næst. Starfsemin var flutt í nýtt húsnæði spölkörn frá snemma árs 2025. Til fróðleiks og gamans er hér vakin athygli á þremur fréttum akureyri.net um þau tímamót í starfsemi bankans.