Afhendingarstöðum áfengis var lokað í gær
Lögreglan á Norðurlandi eystra fór á þrjá afhendingarstaði netverslana með áfengi á Akureyri í gærkvöld og gerði þeim að loka. Samkvæmt áfengislögum er óheimilt að afhenda áfengi á helgidegi. Þetta kemur fram í frétt RUV.
Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni, segir í samtali við RUV að starfsfólk afhendingarstaðanna hafi tekið vel í heimsókn lögreglunnar og lokað.
Vínbúðir Áfengis- og tóbaksverslana ríkisins eru lokaðar alla páskahelgina, að undanskildum laugardegi, enda kveða áfengislög um að ekki megi afhenda áfengi á helgidögum þjóðkirkjunnar og fleiri hátíðisdögum.
Þegar pöntunarsíður netverslananna þriggja á Akureyri eru skoðaðar kemur í ljós að tvær þeirra auglýsa lokun í dag en hjá einni þeirra virðist vera hefðbundinn „fössari“, ekkert mál að panta þar og auglýst opið til miðnættis. Sú netverslun auglýsti ókeypis heimsendingu alla páskana en ef að líkum lætur mun lögreglan grípa aftur inn í komi í ljós að netverslanirnar afhendi viðskiptavinum áfengi um páskana, á öðrum dögum en laugardag.